„Abraham og Sara,“ mánaðarlegur boðskapur Barnavinur, febrúar 2022
„Abraham og Sara“
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinur, febrúar 2022
Abraham og Sara
Abraham var spámaður. Guð gerði sáttmála við Abraham og eiginkonu hans, Söru.
Guð lofaði að blessa þau. Hann sagði þeim að þau myndu eignast börn. Abraham og Sara lofuðu að fylgja Guði.
Abraham og Sara héldu loforð sitt. Þau eignuðust þó engin börn um langa hríð. Þau urðu stöðugt eldri.
Loks, er Abraham var 100 ára og Sara 90 ára, eignuðust þau dreng. Þau gáfu honum nafnið Ísak. Þau vissu að Guð hefði blessað þau.
Ég get treyst Guði. Stundum koma blessanir ekki þegar í stað. Guð heldur þó alltaf loforð sín.
© 2022 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, February 2022. Icelandic. 18313 190