„Móse og mannað,“ Barnavinur Mánaðarlegur boðskapur, apríl 2022
Móse og mannað
Barnavinur Mánaðarlegur boðskapur, apríl 2022
Móse og mannað
Móse var spámaður. Hann leiddi fólk Guðs í átt að fyrirheitna landinu. Það gekk í marga daga.
Fólkið var hungrað. Það hafði engan mat. Guð sendi því þess vegna mat af himnum. Það var kallað manna.
Hvern morgun safnaði fólkið saman manna til að borða. Það hélst samt ekki ferskt yfir nóttina. Það varð að safna meiru næsta dag.
Mannað minnir okkur á Jesú Krist. Guð sendi manna til að bjarga fólkinu. Hann sendi líka Jesú til jarðar til að frelsa okkur. Við þörfnumst Jesú á hverjum degi, alveg eins og við þörfnumst matar á hverjum degi.
Ég mun fylgja Jesú. Hann mun veita mér styrk og hjálpa mér að skynja kærleika hans dag hvern.
© 2022 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, April 2022. Icelandic. 18314 190