“Hið mikla verk Drottins og stóra tækifærið okkar,” Líahóna, júlí 2024.
Hið mikla verk Drottins og stóra tækifærið okkar
Þegar við elskum, miðlum og bjóðum erum við að aðstoða Drottin við að hjálpa sérhverri dýrmætri sál að koma til hans.
Sérhver spámaður í þessari síðustu, miklu ráðstöfun hefur kennt meðlimum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu að miðla hinu endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists. Á minni ævi koma nokkur dæmi upp í hugann:
David O. McKay forseti (1873–1970), spámaður æsku minnar sagði “Sérhver meðlimur er trúboði“
Spencer W. Kimball forseti (1895–1985) kenndi: „Dagurinn til að flytja fagnaðarerindið til sífellt fleiri staða og fólks er hér og nú,“ og „við verðum að lengja skref okkar“ við að deila fagnaðarerindinu með öðrum.
Gordon B. Hinckley forseti (1910–2008) sagði: „Starf okkar er mikið, ábyrgð okkar er gríðarleg að hjálpa til við að finna þá sem á að kenna. Drottinn hefur gefið okkur þá tilskipun að kenna hverri veru fagnaðarerindið. Því þurfum við að gera [okkar] allra besta.“
Russel M. Nelson forseti hefur kennt: „Trúboðsstarf er ómissandi hluti af hinni miklu samansöfnun Ísraels. Sú samansöfnun er það mikilvægasta sem á sér stað á jörðunni í dag. Ekkert annað er jafn umfangsmikið. Ekkert annað er jafn mikilvægt. Trúboðar Drottins – lærisveinar hans – taka þátt í mestu áskoruninni, mikilvægasta málstaðnum, mikilvægasta starfinu á jörðu á okkar tíma.“
Ég sannfærðist um þetta sem ungur trúboði í b reska trúboðinu. Ég er enn sannfærðari í dag. Sem lærisveinn Drottins Jesú Krists ber ég minn vitnisburð um að tækifærin eru allsstaðar til að hjálpa öðrum að koma til Krists með því að sýna elsku okkar, miðla trú okkar og bjóða þeim að upplifa gleði fagnaðarerindis Jesú Krists.
Verkið heldur áfram
Ég naut þeirra forréttinda að sinna verkefni í trúboðsdeild kirkjunnar þegar fyrsta útgáfan af Boða fagnaðarerindi mitt var gefið út árið 2004 og aftur þegar seinni útgáfan kom út árið 2023. Ég trúi því að Boða fagnaðarerindi mitt hafi blessað trúboðsstarf á djúpstæðann hátt.
Ný útgáfa Boða fagnaðarerindi mitt felur í sér allt sem við höfum lært síðan 2004, innblásna leiðsögn frá hverjum meðlim Æðsta forsætisráðsins og Tólfpostulasveitinni og breytingar sem gerðar voru til að miðla fagnaðarerindinu á tölvuöld. Sumar þessara breytingar hafa skilað miklum árangri.
Við höfum komist að því að miðlun fagnaðarerindisins á eðlilegan og náttúrulegan hátt samkvæmt grundvallarreglunum að „elska, miðla og bjóða“ blessar konungsríkið. Jesús Kristur miðlaði fagnaðarerindinu með þessum hætti þegar hann lifði á jörðinni. Hann miðlaði lífi sínu og elsku og bauð öllum að koma til sín. (sjá Matteus 11:28). Að elska, miðla og bjóða eins og hann gerði er sérstök blessun og ábyrgð fyrir sérhvern meðlim kirkjunnar.
Byrjið með elsku
Í Getsemanegarðinum og á krossinum tók Jesús Kristur á sig allar syndir heimsins og mátti þola allar sorgir og „alls kyns sársauka, þrengingar og freistingar“ (Alma 7:11). Þetta „varð þess valdandi, að [hann], … æðstur allra, skalf af sársauka og blóð draup úr hverri svitaholu“ (Kenning og sáttmálar 19:18). Með friðþægingu sinni og upprisu hefur Jesús Kristur gert sáluhjálp og upphafningu mögulega fyrir alla.
Að snúa sér að frelsaranum og íhuga allt sem hann hefur gert fyrir okkur, fyllir hjörtu okkar af elsku til hans. Hann snýr síðan hjörtum okkar til annarra og býður okkur að elska þau (sjá Jóhannes 13:34–35) og miðla þeim fagnaðarerindinu (sjá Matteus 28:19; Markús 16:15). Ef þau sem eru í kringum okkar finna að við elskum þau einlæglega og berum umhyggju fyrir þeim, eru þau líklegri til að opna hjörtu sín fyrir boðskap okkar, eins og Lamoní konungur opnaði hjarta sitt til þess að taka á móti fagnaðarerindinu vegna elsku og þjónustu Ammons (sjá Alma 17–19).
Þegar við miðlum fagnaðarerindinu, byrjum þá með elsku. Þegar við nálgumst aðra með elsku – með það í hugat að þau eru bræður okkar og systur og ástkær börn föður okkar á himnum – mun það opna tækifæri til þess að miðla því sem vitum að er satt.
Starfið af kappi og miðlið
Enginn miðlaði fagnaðarerindinu af meiri kostgæfni en M. Russel Ballard forseti (1928–2023) Í síðustu aðalráðstefnuræðu sinni bar hann sinn vitnisburð, „Ég tel þetta vera eitt það dýrlegasta og dásamlegasta sem hægt er að vita í heiminum, að himneskur faðir og Drottinn okkar Jesús Kristur hafi opinberað sig á þessum síðari tíma og að Joseph hafi verið vakinn upp til að endurreisa fyllingu hins ævarandi fagnaðarerindis Jesú Krists.“
Alla sína ævi og um víða veröld miðlaði Ballard forseti af miklu kappi þessum dýrmæta boðskap með öllum. Hann hvatti okkur til að gera hið sama. Ballard forseti kenndi að við getum miðlað fagnaðarerindinu með því „að vera góðir nágrannar – hugsunarsamir, umhyggjusamir.“ Þannig getum við „geislað frá okkur í eigin lífi þeim blessunum sem fagnaðarerindið hefur að bjóða.“ Við getum líka „borið vitni um það sem [við] [vitum] og [trúum] og það sem [við] [skynjum].“ Ballard forseti kenndi: „Hreinn vitnisburður … getur borist með krafti heilags anda í hjörtu þeirra sem opin eru fyrir því að taka á móti honum.“
Að miðla hinu endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists var dýpsta þrá Ballards forseta. Við getum starfað af kappi – eins og hann gerði – við að miðla öðrum fagnaðarerindinu í orði og verki. Við vitum ekki hverjir meðal okkar gætu verið að leita sannleika fagnaðarerindisins, en vita ekki hvar hann er að finna (sjá Kenning og sáttmálar 123:12).
Bjóðið af hjartans elsku
Við að hjálpa öðrum að koma til Krists, getum við boðið þeim að upplifa gleðina og friðinn sem frelsarinn og fagnaðarerindi hans veita. Við getum gert þetta með því að bjóða þeim að koma á einhvern viðburð, lesa Mormónsbók eða hlýða á kennslu hjá trúboðunum. Við getum líka boðið þeim af hjartans elsku að koma með okkur á sakramentissamkomu.
Við förum á sakramentissamkomu í hverri viku til að „tilbiðja Guð og meðtaka sakramentið til að minnast Jesú Krists og friðþægingar hans.“ Þetta er tilvalinn tími fyrir fólk til að finna fyrir andanum, koma nær frelsaranum og styrkja trú sína á hann.
Þegar við leitum leiða til að elska, miðla og bjóða ætti viðleitni okkar meðal annars að felast í að hjálpa fólki að finna leið til komast á sakramentissamkomu. Ef þau taka boði okkar og mæta á sakramentissamkomu, eru þau líklegri til að halda áfram á leið til skírnar og trúarumbreytingar. Ég trúi því af öllu hjarta að mikill árangur muni nást þegar við bjóðum öðrum að koma á sakramentissamkomur og hjálpum þeim að bera kennsl á þær blessanir sem þau geta hlotið af því að mæta með okkur.
Drottinn mun leiðbeina okkur.
Við vitum aldrei hver árangur og áskoranir okkar verða þegar við elskum, miðlum og bjóðum. Synir Mósía „fóru borg úr borg og frá einu bænhúsi til annars, … meðal Lamaníta til að prédika og kenna orð Guðs meðal þeirra. Og þannig varð árangur mikill af starfi þeirra.“ Vegna viðleitni þeirra „[voru] þúsundir leiddir til þekkingar á Drottni. Já, þúsundir voru leiddir til trúar … [og urðu] aldrei fráhverfir“ (Alma 23:4-6).
Þóþetta mun ekki alltaf vera okkar reynsla, þá hefur Drottinn lofað að hann muni hjálpa okkur, því hver sál er honum dýrmæt. Þegar við setjum traust okkar á Drottin og tökum þátt í þjónustu hans, mun hann leiðbeina okkur við að miðla öðrum fagnaðarerindi sínu með því að við elskum þau, miðlum lífi okkar og vitnisburði með þeim og bjóðum þeim ásamt okkur að fylgja honum.
„Hversu mikil skal þá gleði [okkar] verða“ (Kenning og sáttmálar 18:15) þegar við notum tækifærin allt í kringum okkur til að aðstoða Drottin Jesú Krist í hans mikla verki að leiða sálir til hans.