„Mormónsbók færði mér frið,“ Líahóna, sept. 2024.
Frá Síðari daga heilögum
Mormónsbók færði mér frið
Mér lærðist að skilja að Mormónsbók væri til þess fallin að breyta lífi mínu og færa mig nær Jesú Kristi.
Í árslok 2013 tóku tveir ungir menn í hvítum skyrtum og með bindi að heimsækja systur mína tvisvar í viku. Ég vissi strax að þeir væru frá einhverri kirkju. Hvað mig varðaði var það ekki hluti af áætlunum mínum að vera meðlimur kirkju, svo ég ákvað að tala ekki við þá.
Ég gætti þess í öllum heimsóknum þeirra að vera ekki heima þegar þeir komu. Það var þó nokkuð sérstakt sem vakti athygli mína. Þeir héldu alltaf á blárri bók. Ég hafði aldrei séð hana áður og mér fannst það undarlegt.
Dag einn í stofunni fór systir mín að segja mér frá bókinni. Þá skyndilega komu þessir tveir ungu menn. Því miður gat ég ekki falið mig fyrir þeim. Þau sáu okkur með bláu bókina – Mormónsbók – og hófu að spyrja hvað ég vissi um Jesú Krist.
Þegar ég hlustaði á trúboðana frá þeim degi, varð ég hrifinn af því hvernig þeir tengdu kenningar sínar við Mormónsbók. Fyrir vikið fannst mér bókin síður undarleg.
Ég hafði enn miklar efasemdir um hana, en ég byrjaði að lesa hana. Ég komst að því að Mormónsbók kæmi ekki í staðinn fyrir Biblíuna en að hún væri til þess fallin að breyta lífi mínu og færa mig nær Jesú Kristi. Ég lærði að Mormónsbók snýst um frelsarann. Kenningar hennar hjálpuðu mér að vita hver hann er og hver himneskur faðir er.
Mormónsbók hjálpaði mér fljótlega að verða betri manneskja, sannur lærisveinn Jesú Krists. Hún hjálpaði mér líka að bæta viðhorf mitt er ég stóð frammi fyrir daglegum áskorunum. Af reynslu minni við að læra hana, veit ég að hún hjálpar fólki að koma til Krists og lifa eftir fagnaðarerindinu (sjá Moróní 10:32). Hún hvetur okkur til að fylgja kenningum Krists og að heimfæra þær upp á daglegt líf okkar. Hún veitir okkur þá þekkingu að við erum synir og dætur Guðs. Hún færir frið.
Eftir nokkurra vikna fundi með trúboðunum og lestur Mormónsbókar, lét ég skírast. Af öllu hjarta ber ég vitni um að Mormónsbók er sönn og að lestur hennar færir von og ljós inn í myrkustu stundirnar, sem gerir okkur svo kleift að finna elsku og vernd Drottins. Ég er þakklátur fyrir að hafa Mormónsbók í lífi mínu.