Líahóna
Nefí sér Jesúbarnið
Desember 2024


„Nefí sér Jesúbarnið,“ Barnavinur, des. 2024, 26–27.

Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, desember 2024

Nefí sér Jesúbarnið

Lehí kennir Nefí og Nefí á bæn

Myndskreyting: Andrew Bosley

Lehí, faðir Nefís, sá Jesú Krist í sýn. Nefí langaði líka að sjá þessa sýn. Hann baðst fyrir og bað um að fá að sjá það sama og faðir hans sá.

Nefí sér Maríu í sýn

Heilagur andi sýndi Nefí þessa sömu sýn. Nefí sá unga konu að nafni María. Heilagur andi sagði að hún yrði móðir sonar Guðs, Jesú Krists.

Nefí sér Maríu og Jesúbarnið í sýn

Nefí sá barnið Jesú með Maríu. Heilagur andi sagði að Jesús myndi koma til jarðarinnar til að hjálpa börnum himnesks föður.

Nefí skráir sýn sína; stúlka les ritningarnar

Nefí sá líf Jesú Krists. Hann sá hann þjóna og kenna fólki. Nefí lærði margt um frelsarann. Þið getið líka lært um hann með því að lesa ritningarnar.

Litasíða

Jólin snúast um Jesú

Litasíða

Myndskreyting: Adam Koford

„Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn“ (Jesaja 9:6).