„Fjárhirðar vitja barnsins Jesú,“ Barnavinur, des. 2023, 46–47.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, desember 2023
Fjárhirðar vitja barnsins Jesú
Kvöld nokkurt vitjaði engill fjárhirða á akri. Engillinn sagði að mikilvægt barn hefði fæðst. Hann héti Jesú Kristur. Hann myndi verða frelsari allra manna hér í heimi. Fleiri englar komu. Þeir sungu: „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.“
Fjárhirðarnir hröðuðu sér til að vitja barnsins Jesú. Þeir voru svo glaðir að sjá hann!
Fjárhirðarnir sögðu öðrum frá Jesú Kristi. Þeir vildu að allir heyrðu þessi góðu tíðindi.
© 2023 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, December 2023. Language. 19049 190