„Veljið,“ Til styrktar ungmennum, júní 2022.
Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, júní 2022
Velja
Jósúa hvatti fólk sitt til að velja rétt – að fylgja Drottni.
velja
Geta okkar til að velja og framkvæma sjálfstætt kallast sjálfræði. Það er mikilvægur hluti af áætlun himnesks föður. Einn tilgangur þessa lífs er að sýna að við munum velja að hlýða boðorðum Guðs svo að við getum orðið líkari honum. Við verðum dæmd í samræmi við val okkar. (Sjá 2. Nefí 2:27; Kenning og sáttmálar 101:78; Abraham 3:25.)
í dag
Jósúa hvatti fólk sitt til að velja „í dag,“ eða strax. Við getum tekið mikilvægar ákvarðanir í eitt skipti og síðan reynt að standa við þær. (Sjá Sálmarnir 37:5.)
þjóna
Að þjóna þýðir í þessu versi að tilbiðja, aðstoða, hlýða og helga ykkur einhverjum. Við ættum að þjóna Drottni (sjá HDP Mós 1:15).
guðir
Ísrael hafði verið boðið að þjóna einungis hinum eina sanna og lifandi Guð, Jesú Kristi (sjá 2. Mósebók 20:2–5). Jósúa gaf dæmi um aðra guði sem fólk hans ætti ekki að tilbiðja. Aðrir guðir í lífi okkar gætu verið eignir, álit annarra, önnur áhugamál – hvað sem tekur okkur frá Drottni.
Ég og mín ættmenni
Jósua talaði fyrir sig sjálfan og sín ættmenni. Hann sagði að þeir myndu þjóna Drottni. Hann vildi leiða fjölskyldu sína í réttlæti og kenna þeim að fylgja Drottni (sjá Kenning og sáttmálar 93:39).
© 2022 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly For the Strength of Youth Message, June 2022. Icelandic. 18315 190