Æskufólk
Í miðjum undirbúningi að trúboði
Uchtdorf forseti býður trúboðum að líta svo á að þeir séu í miðju trúboðs síns. Þið getið líka hagnýtt þessa hugmynd við eigin trúboðsundirbúning: Þið getið búið ykkur undir trúboðsþjónustu, hvort heldur þið eruð 12 eða 18 ára.
Hvað er nokkuð af því sem þið getið gert „í miðjum” undirbúningi ykkar fyrir trúboð?
-
Verðið alltaf verðug þess að fara í musterið.
-
Lærið að þekkja innblástur heilags anda með því að skrá innblásturinn og fylgja honum.
-
Biðjið fyrir trúboðunum.
-
Spyrjið trúboðana á ykkar svæði hvað þeir telji best að þið gerið til að búa ykkur undir að þjóna í trúboði.
-
Lærið að stjórna tíma ykkar vel, þar á meðal mikilvægum viðfangsefnum, líkt og þjónustu, ritningarlestri og dagbókarskrifum.
-
Þegar þið ræðið við fjölskylduna, miðlið þá ritningargrein sem nýverið hefur innblásið ykkur. Útskýrið hvað ykkur finnst um ritningargreinina.
-
Spyrjið vini ykkar um trú þeirra og skoðanir. Verið fús til að miðla trú ykkar. Bjóði þeim á viðburði í kirkjunni.
Þegar þið áttið ykkur á að þið eruð á miðju undirbúningsskeiði trúboðs ykkar, getið þið lifað þannig að þið séuð verðugri þess að njóta trausts Drottins og samfélag andans.