Boðskapur heimsóknarkennara, Febrúar 2016
Hjónaband er vígt af Guði
Kynnið ykkur efnið sem hér er, í bænaranda og leitið að því sem miðla á. Hvernig getur skilningur á „Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins“ aukið trú ykkar á Guð og blessað þær konur sem þið vakið yfir með heimsóknarkennslu? Frekari upplýsingar má finna á reliefsociety.lds.org.
Spámenn, postular og leiðtogar halda áfram að „[lýsa] því hátíðlega yfir að hjónaband milli karls og konu [sé] vígt af Guði og að fjölskyldan [sé] kjarninn í áætlun skaparans um eilíf örlög barna hans“1
Öldungur D. Todd Christofferson í Tólfpostulasveitinni, kenndi: „Fjölskylda, sem grundvölluð er á hjónabandi karls og konu, er besta umgjörðin til að áætlun Guðs nái fram að ganga. …
… Hvorki við, né nokkrir aðrir, fáum breytt þessari guðlegu hjónabandsreglu.“2
Bonnie L. Oscarson, aðalforseti Stúlknafélagsins, sagði: „Allir, burtséð frá hjónabandsstöðu þeirra eða barnafjölda, geta verið verjendur áætlunar Drottins sem lýst er í fjölskylduyfirlýsingunni. Ef þetta er áætlun Drottins þá ætti hún einnig að vera okkar áætlun!“3
Öldungur Christofferson sagði líka: „Sum ykkar njóta ekki blessunar hjónabands af ástæðum sem gætu verið skortur á tækifærum, samkynhneigð, líkamlegir eða huglægir annmarkar eða ótti við að mistakast. … Þið gætuð líka hafa gift ykkur og hjónabandið endað með skilnaði. … Sum ykkar, sem eruð gift, geta ekki átt börn. …
Hvað sem þessu líður, … þá geta allir lagt sitt af mörkum við að leiða fram hina guðlegu áætlun meðal eigin kynslóða.“4
Viðbótarritningargreinar
Raunverulegir atburðir
Bróðir Larry M. Gibson, fyrrverandi fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Piltafélagsins, minntist þess þegar Shirley, sem nú er eiginkona hans, sagði:
„‚Ég elska þig af því að ég veit að þú elskar Drottin meira en þú elskar mig.‘ …
Þetta svar stakk mig í hjartað. …
… Ég vildi þá að hún vissi alltaf að ég elskaði Drottin framar öllu.“5
Öldungur David A. Bednar í Tólfpostulasveitinni, kenndi: „Drottinn Jesús Kristur er þungamiðjan í hjónabandi sáttmálans. … [Ímyndið ykkur að] staða frelsarans væri á topphorni þríhyrnings, og staða konunnar og karlsins við sitthvort grunnhornið. Hugleiðið nú hvað gerast mun í sambandi karls og konu þegar þau staðfastlega, hvort um sig, ‚koma til Krists‘ og leggja kapp á að ‚ná … fullkomnun í honum‘ (Moró 10:32). Vegna frelsarans og fyrir frelsarann komast þau nær hvort öðru.“6
© 2016 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in Germany. Samþykkt á ensku: 6/15. Þýðing samþykkt: 6/15. Þýðing á Visiting Teaching Message, February 2016. Icelandic. 12862 190