5. Kapítuli
Aðferðin við að þjónusta sakramentisvínið. Um 401–21 e.Kr.
1 Aðferð við að blessa vínið — Sjá. Þeir tóku bikarinn og sögðu:
2 Ó Guð, eilífi faðir. Í nafni sonar þíns, Jesú Krists, biðjum vér þig að blessa og helga þetta vín fyrir sálir allra, er það drekka; að þau gjöri svo til minningar um blóð sonar þíns, sem úthellt var fyrir þau; að þau vitni fyrir þér, ó Guð, eilífi faðir, að þau hafi hann ávallt í huga, svo að andi hans sé með þeim. Amen.