2010
Jesús Kristur, okkar fullkomni vinur
júlí 2010


Börn

Jesús Kristur, okkar fullkomni vinur

Eyring forseti sagði Jesú vera okkar fullkomna vin. Hér er nokkuð af því sem felst í hinni fullkomnu vináttu Jesú.

Hann vill það sem okkur er fyrir bestu.

Hann gleðst þegar við erum hamingjusöm.

Hann er sorgmæddur þegar við erum sorgmædd eða okkur líður illa.

Hann þjáðist fyrir syndir okkar svo að við getum snúið aftur til himnesks föður.

Vera vinur fyrir hönd Jesú

Eyring forseti sagði að við gætum orðið vinir Jesú með því að sýna öðrum vináttu fyrir hans hönd. Teiknið myndir af atriðunum fjórum sem þið getið notað til að vera vinir.

Þið getið hjálpað einhverjum sem er sorgmæddur.

Þið getið verið vinir einhvers sem er einmana.

Þið getið boðið einhverjum að koma í kirkju.

Þið getið ætíð munað eftir Jesú.

Prenta