2010
Kennsla fyrir okkar tíma
nóvember 2010


Kennsla fyrir okkar tíma

Á fjórða sunnudegi hvers mánaðar skulu Melkísedeksprestdæmið og Líknarfélagið kenna námsefnið „Kennsla fyrir okkar tíma.“ Hverja lexíu má setja saman úr einni ræðu eða fleirum frá síðustu aðalráðstefnu. Stikuforsetar og umdæmisforsetar geta valið hvaða ræður skal kenna, en þeim er einnig heimilt að fela biskupum og greinarforsetum þá ábyrgð. Leiðtogar ættu að leggja áherslu á að sama námsefnið sé kennt fyrir bræðurna í Melkísedeksprestdæminu og systurnar í Líknarfélaginu á sömu sunnudögum.

Þau ykkar sem sitja kennslustund á fjórða sunnudegi eru hvött til að kynna ykkur síðasta hefti aðalráðstefnu.

Ábendingar um lexíur úr ræðum

Biðjið þess að heilagur andi verði með ykkur þegar þið nemið og kennið ræður. Þið getið freistast til þess að nota annað efni, en ráðstefnuræður er það námsefni sem nota skal. Verkefni ykkar er að hjálpa öðrum að læra fagnaðarerindið og lifa eftir því, líkt og kennt er á síðustu aðalráðstefnu kirkjunnar.

Lesið ræðurnar og gætið að reglum og kenningum sem nemendur ykkar hafa þörf fyrir. Gætið einnig að frásögnum, tilvísunum í ritningarnar og yfirlýsingum í ræðunum, sem auðvelda ykkur að kenna sannleikann.

Gerið drög að því hvernig þið kennið reglurnar og kenningarnar. Í kennsludrögum ykkar ættu að vera spurningar sem gagnlegar eru nemendum:

  • Gætið að reglum og kenningum í ræðunum.

  • Hugsið um merkingu þeirra.

  • Miðlið hugmyndum, lífsreynslu og vitnisburði.

  • Heimfærið reglur og kenningar upp á líf þeirra.

Mánuðir

Námsefni fjórða sunnudags

Nóvember 2010–apríl 2011

Ræður gefnar út í Líahóna*nóvember 2010

Maí 2011–október 2011

Ræður gefnar út í Líahóna*maí 2011

Prenta