„Hin mörgu nöfn Jesú,“ mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, desember 2022
„Hin mörgu nöfn Jesú“
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, desember 2022
Hin mörgu nöfn Jesú
Myndskreyting: Apryl Stott
Margir spámenn kenndu um Jesú Krist. Þeir sögðu að hann myndi koma í heiminn til að sýna okkur hvernig ætti að lifa. Þeir notuðu mörg nöfn til að kenna um hann.
Sums staðar í ritningunum er Jesús kallaður Immanúel. Nafnið þýðir „Guð með oss.“
Jesús er líka kallaður Messías. Messías þýðir „hinn smurði.“ Jesús dó fyrir okkur, svo við gætum lifað á ný með Guði.
Jesús er frelsari okkar. Hann frelsar okkur frá syndum okkar og frá dauða.
Annað nafn fyrir Jesús er Friðarhöfðingi. Þegar við erum óttaslegin eða í uppnámi, getur hann hjálpað okkur að finna frið fyrir tilstilli heilags anda.
Ég elska Jesú Krist. Í ritningunum get ég lært um líf hans og elsku.
Litasíða
Ég elska Jesú Krist.
Smellið á myndina til að niðurhala.
Myndskreyting: Apryl Stott
Hvernig sýnið þið elsku ykkar til Jesú?
© 2022 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, December 2022. Icelandic. 18318 190