„Leitið skilnings,“ Til styrktar ungmennum, ágúst. 2023.
Mánaðarlegur boðskapur Til styrktar ungmennum, ágúst 2023
Leitið skilnings
Aðlagað úr aðalráðstefnuræðu, apríl 2019.
Þegar við leitum aukins skilnings á fagnaðarerindi Jesú Krists, verður tilgangur okkar að vera sá að efla trú okkar á Guð og hans guðlegu sæluáætlun og á Jesú Krist og friðþægingarfórn hans og ná fram varanlegri trúarumbreytingu. Slík aukin trú og trúarumbreyting, munu hjálpa okkur að gera og halda sáttmála við Guð, auka þrá okkar til að fylgja Jesú Kristi og vekja í okkur raunverulega andlega umbreytingu. Sú umbreyting mun leiða til hamingjusamara, árangursríkara og heilbrigðara lífs og stuðla að eilífri yfirsýn.
Til að ná því marki, þurfum við að hlýða frelsaranum, sökkva okkur niður í ritningarnar, gleðjast yfir þeim, læra kenningu hans og reyna að lifa að hans hætti. Einungis þannig munum við þekkja hann, Jesú Krist, og rödd hans og vita að okkur mun aldrei hungra eða þyrsta, ef við komum til hans og trúum á hann (sjá Jóhannes 6:35)
Það gerist ekki af hendingu. Samstilla okkur sjálf æðstu áhrifum guðleikans, er ekki einfalt mál; það krefst þess að við áköllum Guð og lærum hvernig hafa á fagnaðarerindi Jesú Krists sem þungamiðju lífs okkar.
Ég ber vitni um að þegar við lærum fagnaðarerindi Jesú Krists einlæglega, hjartanlega og af alúð og ábyrgð og kennum það öðrum af einlægum ásetningi og með áhrifum andans, geta þessar kenningar umbreytt hjörtum og innblásið þrá til að lifa í samhljóm við sannleika Guðs.
© 2023 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly For the Strength of Youth Message, ágúst 2023. Language. 19046 190