2010
Syngdu þinn fegursta söng
júní 2010


Börn

Syngdu þinn fegursta söng

Monson forseti sagði frá þremur kanarífuglum systur McKee. Tveir voru eingöngu gulir að lit. Þeir litu út fyrir að vera fullkomnir! Sá þriðji leit ekki út fyrir að vera fullkominn, því hann var með gráan lit í vængjum. En systur McKee þótti vænt um hann, því hann söng svo fallega.

Sumu fólki finnst það ekki vera eins fallegt eða viturt og aðrir. En Drottni finnst hver manneskja dýrmæt. Við getum verið trúföst, hugrökk og notað hæfileika okkar til að þjóna öðrum. Þá erum við lík gula kanarífuglinum með gráa litinn í vængjunum. Við erum ekki fullkomin, en við syngjum fegursta söng okkar!

Skrifið niður þrjár leiðir til að syngja ykkar fegursta söng fyrir Drottin.

Ég get sungið minn fegursta söng fyrir Drottin með því að:

Prenta