Unglingar
Hvað er sönn fegurð?
Í boðskapnum segir Monson forseti: „Í þessum heimi virðist siðferðislegur persónuleiki oft lúta í lægra haldi fyrir fegurð eða þokka.“ Vera má að stúlkur eigi í basli með ímynd sína – hverjar þær eru og hvað þær geti orðið. Íhugið þessar hugleiðingar öldungs Lynn G. Robbins, af hinum Sjötíu, um sanna fegurð:
-
Stúlka sem geislar bæði af hamingju og dyggð, ljómar af innri fegurð.
-
Dyggðugt brosið er sannarlega fallegt er það ljómar algerlega á náttúrulegan hátt. Slíka sanna fegurð er ekki hægt að mála á sig, heldur er hún gjöf frá andanum.
-
Hæverska er ytra tákn og skilyrði fyrir innri fegurð.
-
Hulin fegurð sem ástvinir sjá getur orðið að spegli til sjálfsbetrunar.
-
Sá maður sem dyggðug kona vill giftast litur ekki á mennina eins og hinn náttúrulegi maður (sjá 1 Sam 16:7). Hann mun laðast að hinni sönnu fegurð sem geislar frá hennar tæra og glaðværa hjarta. Sama á við um stúlku sem leitar að dyggðugum pilti.
-
Faðir okkar á himni væntir þess að öll börn hans muni velja hið rétta, sem er eina leiðin að varanlegri hamingju og innri fegurð.
-
Það er engin keppni í gangi hjá Drottni. Allir eiga jafnan rétt á því að hafa mynd hans greypta í svip sinn (sjá Al 5:19). Sannari fegurð er ekki til.
Skoðið Lynn G. Robbins, “True Beauty,” New Era, nóv. 2008, 30, til að lesa boðskapinn í heild. Piltar geta lesið svipaðar ráðlegginar í Errol S. Phippen, “Ugly Duckling or Majestic Swan? It’s Up to You,” Liahona, okt. 2009, 36.