„Jesús Kristur gaf kirkju sinni nafn,“ Barnavinur, okt. 2021.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar , október 2021
Jesús Kristur gaf kirkju sinni nafn
Jesús Kristur sagði Joseph Smith hvað kirkjan ætti að heita. Hann sagði að nafn hennar ætti að vera „Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.“
Orðin Jesú Krists eru mikilvægasti hluti nafns kirkjunnar. Þar sem þetta er kirkja Jesú Krists, ber hún hans nafn.
Síðari daga heilögu vísar til meðlima kirkjunnar á okkar tímum.
Spámenn og postular hafa kennt að mikilvægt sé að nota hið rétta nafn kirkjunnar. Það sýnir öðrum að við trúum á Jesú Krist.
Þegar aðrir spyrja um trú mína, get ég sagt: „Ég trúi á Jesú Krist. Ég tilheyri Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.“
© 2021 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, October 2021. Icelandic. 17474 190