„Jesús blessaði einn af öðrum,“ Barnavinur, október 2024, 26–27.
Mánaðarlegur boðskapur Barnavinar, október 2024
Jesús blessaði einn af öðrum
Myndskreyting: Andrew Bosley
Spámenn kenndu Nefítunum táknin um dauða Jesú Krists. Þegar hann dó var myrkur í landinu í þrjá daga. Síðar heyrði fólkið rödd himnesks föður tala frá himnum.
Himneskur faðir sagði: „Sjá minn elskaða son“ (3. Nefí 11:7). Jesús birtist Nefítunum. Hann var reistur upp frá dauðum! Hann kenndi Nefítunum margt. Hann bauð þeim að iðrast og fylgja sér.
Hann bauð fólkinu að koma með hina sjúku til sín til lækningar. Hann blessaði þá.
Hann blessaði líka öll börnin, eitt af öðru. Englar umkringdu börnin.
Litasíða
Frelsarinn elskar öll börn himnesks föður.
Myndskreyting: Adam Koford
Hvernig finnið þið elsku frelsarans?
© 2024 Intellectual Reserve, Inc. Allur réttur áskilinn. Printed in USA. Samþykkt á ensku: 6/19. Þýðing samþykkt: 6/19. Þýðing á Monthly Friend Message, October 2024. Icelandic. 19291 190