„Þið eruð kennarar í kirkju Jesú Krists,“ Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: Nýja testamentið 2023 (2022)
„Þið eruð kennarar í kirkju Jesú Krists,“ Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: 2023
Þið eruð kennarar í kirkju Jesú Krists
Þið hafið verið kölluð af Guði til að kenna börnum hans að hætti frelsarans. Þið voruð sett í embætti þessarar köllunar með valdsumboði hans heilaga prestdæmis. Þótt þið séuð ekki reyndir kennarar, þá mun himneskur faðir sjá ykkur fyrir áhrifum og krafti heilags anda til að hjálpa ykkur að ná árangri, ef þið lifið verðuglega, biðjist fyrir daglega og lærið ritningarnar (sjá 2. Nefí 33:1).
Þau sem ykkur er falið að annast eru börn himnesks föður og hann veit hvað þau þurfa og hvernig best er að ná til þeirra. Þegar þið leitið áhrifa heilags anda í bæn, mun hann mun leiða ykkur við undirbúning ykkar og kennslu. Hann mun opinbera ykkur hvað segja og gera skal (sjá 2. Nefí 32:5).
Megintilgangur kennslu fagnaðarerindisins og náms er að auka trúarumbreytingu til himnesks föður og Jesú Krists. Tilgangur ykkar sem kennarar er að hjálpa þeim sem þið kennið að gera allt sem þeir geta til að auka trúarlega umbreytingu – viðleitni sem nær langt út fyrir kennslustofuna. Bjóðið þeim sem þið kennið að taka virkan þátt í því að læra um Jesú Krist og fagnaðarerindi hans og tileinka sér það sem þeir læra. Hvetjið þá til að gera sjálfsnám og fjölskyldunám utan kennslustofunnar að megin uppsprettu trúarnáms síns. Þegar þeir starfa í trú með því að læra sem einstaklingar og fjölskyldur, munu þeir bjóða andanum í líf sitt og það er andinn sem snýr til sannrar trúar. Allt sem þið gerið sem kennarar ætti að byggjast á þessu helga viðfangsefni.
Kennið aðeins kenninguna um hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists eins og hún er í ritningunum og orðum síðari daga spámanna. Hrein kenning – eilífur, óbreyttur sannleikur sem kenndur er af Guði og þjónum hans – býður heim andanum og hefur kraft til að breyta lífi.
Köllun til að kenna er heilagt traust og eðlilegt er að finnast hún stundum yfirþyrmandi. Hafið þó hugfast að himneskur faðir kallaði ykkur og hann mun aldrei yfirgefa ykkur. Þetta er verk Drottins og þegar þið þjónið „af öllu hjarta yðar, mætti, huga og styrk“ (Kenning og sáttmálar 4:2), mun hann auka við getu ykkar, gjafir og hæfileika og þjónusta ykkar mun blessa líf þeirra sem þið kennið.