Nýja testamentið 2023
Fyrirmynd að kennslu


„Fyrirmynd að kennslu,“ Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: Nýja testamentið 2023 (2022)

„Fyrirmynd að kennslu,“ Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: 2023

Ljósmynd
ungdómur að læra ritningarnar

Fyrirmynd að kennslu

Í öllum lexíudrögum í þessu riti er forskrift sem okkur er boðið að fylgja við að miðla og kenna kenninguna. Í mörgum tilfellum skarast þættir þessarar fyrirmyndar eða koma í mismunandi röð. Íhugið t.d. að miðlun er tækifæri til að kenna kenninguna og það að kenna kenninguna ætti að bjóða upp á tækifæri til að miðla. Leyfið breytingum á þessari fyrirmynd að gerast náttúrlega, fylgið innblæstri andans til að mæta þörfum þeirra sem þið kennið.

Boð um að miðla

Bjóðið meðlimum bekkjarins að miðla af þeim skilningi og reynslu sem þeir hlutu í liðinni viku við að læra ritningarnar sem einstaklingar og fjölskyldur og tileinka sér námsefnið. Hjálpið meðlimum bekkjarins að skilja að persónulegt nám þeirra utan kennslustundar er mikilvægt. Einstaklingsbundin trúarumbreyting þeirra til himnesks föður og Jesú Krists mun ekki einungis eiga sér stað með sunnudaganámi, heldur einnig með daglegri reynslu þeirra. Þegar meðlimir bekkjarins hlýða á upplifanir og vitnisburði hvers annars um fagnaðarerindi Jesú Krists og fagnaðarerindi hans, verða þeir líklegri til að leita sjálfir eftir álíka upplifunum.

Ekki munu allir hafa lesið kaflana fyrir hverja kennslustund og sumum sem lásu gæti jafnvel fundist óþægilegt að miðla efninu. Gætið þess að öllum meðlimum bekkjarins finnist þeir vera metnir í bekknum, hvort sem þeir miðla einhverju eða ekki.

Kennið kenninguna

Þið og meðlimir bekkjar ykkar ættuð að einbeita ykkur að Jesú Kristi og kenningu hans – hinum eilífa sannleika fagnaðarerindisins – sem finna má í ritningunum. Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur getur hjálpað ykkur að skilja kenningarnar sem þið kennið. Hvaða versum, tilvitnunum, upplifunum, spurningum og fleiri úrræðum gætuð þið miðlað er þið ræðið kenningar ritninganna? Hvernig gætuð þið notað þetta rit til að hjálpa meðlimum bekkjarins að uppgötva og skilja reglur fagnaðarerindisins? Hvernig getið þið hjálpað þeim að styrkja trú sína á himneskan föður og Jesú Krist?

Prenta