Handbækur og kallanir
30. Kallanir í kirkjunni


„30. Kallanir í kirkjunni,“ Valið efni úr Almennri handbók (2023).

„30. Kallanir í kirkjunni,“ Valið efni úr Almennri handbók

Ljósmynd
fólk réttir upp hægri hönd

30.

Kallanir í kirkjunni

30.0

Inngangur

Kallanir gefa meðlimum tækifæri til að upplifa gleði þess að þjóna Guði með því að þjóna börnum hans (sjá Mósía 2:17). Kallanir hjálpa meðlimum líka við að auka trú þeirra og komast nær Drottni.

Það er ekki viðeigandi að sækjast eftir ákveðnum köllunum í kirkjunni (sjá Markús 10:42–45; Kenning og sáttmálar 121:34–37). Meðlimir kirkjunnar fá heldur ekki „stöðuhækkun“ frá einni köllun til annarrar. Trúföst þjónusta í köllun er mikilvægari en það hver köllunin er. Drottinn heiðrar hollustu allra sem þjóna í kirkju hans.

30.1

Ákveða hvern skal kalla

30.1.1

Almennar leiðbeiningar

Þeir sem þjóna í kirkjunni eru kallaðir af Guði (sjá Hebreabréfið 5:4; Trúaratriðin 1:5). Leiðtogar leita leiðsagnar andans við að ákveða hvern skal kalla (sjá einnig 4.2.6). Þeir hugleiða einnig:

  • Verðugleika meðlimsins (sem kemur fram í viðtali).

  • Þá hæfileika og getu sem meðlimurinn hefur, eða gæti þroskað, til að blessa aðra.

  • Persónulegar aðstæður meðlimsins, þar með talið heilsa og starf hans eða hennar.

  • Þau áhrif sem köllunin gæti haft á hjónaband og fjölskyldu meðlimsins.

Meðlimir eru blessaðir fyrir þær fórnir sem þeir færa til að þjóna í kirkjunni. Köllun ætti hins vegar ekki að leggja óþarft álag á einstaklinga og fjölskyldur. Kallanir ættu heldur ekki að gera meðlimum erfitt fyrir að uppfylla atvinnuskyldur þeirra.

Almennt er hver meðlimur kallaður til að þjóna í aðeins einni köllun í einu, fyrir utan að vera þjónandi bróðir eða systir.

Þegar giftur meðlimur er kallaður, tryggja leiðtogar það að makinn sé meðvitaður og veiti kölluninni stuðning. Þegar piltur eða stúlka eru kölluð, fá leiðtogar samþykki frá foreldrum eða forráðamönnum hans eða hennar.

Áður en fólk er kallað, fer biskupinn vandlega yfir meðlimaskýrslu einstaklingsins til að staðfesta að þar séu ekki athugasemdir eða formleg aðildartakmörkun.

30.1.2

Kallanir fyrir nýja meðlimi

Tækifæri til að þjóna hjálpar meðlimum að vaxa andlega.

Deildarleiðtogar veita nýjum meðlimum tækifæri til að þjóna fljótlega eftir að þeir eru skírðir og staðfestir.

30.1.3

Kallanir fyrir þá sem ekki eru meðlimir

Kalla má einstaklinga sem ekki eru meðlimir í sumar stöður, eins og organista, tónlistarstjóra eða kallanir til að skipuleggja athafnir. Þeir ættu hins vegar ekki að vera kallaðir sem kennarar, forsætisráðsmeðlimir í sveitum eða samtökum eða sem tónlistarstjórar Barnafélagsins.

30.1.4

Trúnaður

Kallanir og aflausnir eru heilagar. Vegna þessa, halda leiðtogar upplýsingum um væntanlegar kallanir eða aflausnir í trúnaði.

30.1.5

Meðmæli og samþykki fyrir köllunum

Taflan yfir kallanir gefur til kynna hver megi koma með tillögur fyrir hverja köllun og hver veitir samþykki (sjá 30.8).

Biskupar og stikuforsetar hugleiða hverja tillögu vandlega, meðvitaðir um að hún hefur verið lögð fram í bænarhug. Biskupsráð eða stikuforsætisráð ber endanlega ábyrgð á því að meðtaka innblástur varðandi það hver er kallaður.

30.2

Veita köllun

Það ætti að vera þýðingarmikil andleg reynsla fyrir meðlim að fá köllun til að þjóna.

Þegar leiðtogi veitir köllun, útskýrir hann að hún komi frá Drottni.

Leiðtoginn getur einnig:

  • Útskýrt tilgang, mikilvægi og ábyrgð köllunarinnar.

  • Hvatt meðliminn til að leita anda Drottins við að uppfylla köllunina.

  • Borið vitni um að Drottinn muni hjálpa meðlimnum og blessa hann eða hana fyrir trúfasta þjónustu.

  • Segja meðlimnum hver muni veita þjálfun og stuðning fyrir köllunina.

  • Upplýsa meðliminn um hvaða fundi hann eða hún ætti að sitja og hvaða úrræði séu í boði.

30.3

Styðja meðlimi í köllunum

Kynna ætti þá sem kallaðir eru til flestra kallana fyrir stuðningsyfirlýsingu, áður en þeir hefja þjónustu (sjá Kenning og sáttmálar 28:13; 42:11).

Sá sem stýrir stuðningsyfirlýsingunni kynnir fyrst þá sem leystir hafa verið af (ef við á). Hann býður meðlimunum að sýna þakklæti sitt fyrir þjónustu þess einstaklings (sjá 30.6).

Þegar einstaklingur er kynntur til stuðnings, býður valdhafandi prestdæmisleiðtogi honum eða henni að standa upp. Leiðtoginn gæti notað álíka orð eins og:

„[Nafn] hefur verið kallaður/kölluð sem [staða]. Þeir sem eru því samþykkir að styðja [hann eða hana], sýni það með uppréttri hægri hönd. [Bíður örstutt.] Þeir sem eru því mótfallnir, sýni það. [Bíður örstutt.]“

Ef meðlimur í góðu standi mótmælir kölluninni, hittir leiðtoginn sem er í forsæti eða annar tilnefndur prestdæmisleiðtogi, hann eða hana afsíðis eftir fundinn.

30.4

Setja meðlimi í embætti til þjónustu í köllun

Fyrir frekari upplýsingar, sjá 18.11.

30.6

Leysa meðlimi frá köllunum

Þegar forseti eða biskup er leystur frá, þá eru ráðgjafar hans eða hennar leystir frá sjálfkrafa.

Aflausn frá köllun er mikilvægt tækifæri fyrir leiðtoga til að tjá þakklæti og viðurkenna hönd Guðs í þjónustu meðlimsins. Leiðtoginn hittir meðliminn persónulega og upplýsir hann eða hana um aflausnina áður en að hún er tilkynnt opinberlega. Þeir einir eru upplýstir sem þurfa að vita af aflausninni, áður en hún er tilkynnt.

Heimilaður prestdæmisleiðtogi kynnir aflausnina í sömu aðstæðum og þegar einstaklingurinn var studdur. Leiðtoginn gæti notað álíka orð eins og:

„[Nafn] hefur verið leyst/ur af sem [staða]. Þeir sem vilja þakka fyrir þjónustu [hans eða hennar], geta gert svo með uppréttingu handar.“

Leiðtoginn spyr ekki hvort einhver sé mótfallinn.

30.8

Tafla yfir kallanir

30.8.1

Deildarkallanir

Köllun

Mælt með af

Samþykkt af

Stutt af

Kallað og sett í embætti af

Köllun

Biskup2

Mælt með af

Stikuforsætisráð, notar LCR

Samþykkt af

Æðsta forsætisráðið og Tólfpostulasveitin

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti, eftir samþykki frá Æðsta forsætisráðinu

Köllun

Ráðgjafar í biskupsráði2

Mælt með af

Biskup

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Deildarritari

Mælt með af

Biskupsráð

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti, tilnefndur ráðgjafi eða háráðsmaður

Köllun

Framkvæmdarritari deildar

Mælt með af

Biskupsráð

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti, tilnefndur ráðgjafi eða háráðsmaður

Köllun

Forseti öldungasveitar

Mælt með af

Stikuforsætisráð (í samráði við biskupinn)

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti

Köllun

Ráðgjafar í forsætisráði öldungasveitar

Mælt með af

Forseti sveitar (í samráði við biskupinn)

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti, tilnefndur ráðgjafi eða háráðsmaður

Köllun

Aðrar öldungasveitarkallanir

Mælt með af

Forsætisráð sveitar

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Meðlimir sveitar

Kallað og sett í embætti af

Forseti sveitar eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Forsetar samtaka deildar

Mælt með af

Biskupsráð

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup

Köllun

Ráðgjafar í forsætisráðum samtaka deildar

Mælt með af

Forseti samtaka

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Aðrar deildarkallanir í Líknarfélagi

Mælt með af

Líknarfélagsforsætisráð

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Meðlimir Líknarfélags

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Aðrar kallanir í Stúlknafélagi, Barnafélagi og sunnudagaskóla.

Mælt með af

Forsætisráð samtaka

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Trúboðsleiðtogi deildar (meðlimur forsætisráðs öldungasveitar getur gegnt þessu hlutverki; ef svo er, þarf hann ekki að vera kallaður, studdur eða settur í embætti sérstaklega)

Mælt með af

Biskupsráð (í samráði við forseta öldungasveitar og Líknarfélags)

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Deildartrúboðar

Mælt með af

Biskupsráð eða forsetar öldungasveitar og Líknarfélags

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Leiðtogi musteris- og ættarsögustarfs deildar (meðlimur forsætisráðs öldungasveitar getur gegnt þessu hlutverki; ef svo er, þarf hann ekki að vera kallaður, studdur eða settur í embætti sérstaklega)

Mælt með af

Biskupsráð (í samráði við forseta öldungasveitar og Líknarfélags)

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Aðstoðarmenn forseta prestasveitar

Mælt með af

Biskup (sem forseti prestasveitar)

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Meðlimir sveitar

Kallað og sett í embætti af

Biskup

Köllun

Forsetar kennarasveitar og djáknasveitar

Mælt með af

Biskupsráð

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Meðlimir sveitar

Kallað og sett í embætti af

Kallaðir af biskup eða tilnefndum ráðgjafa; settur í embætti af biskupnum

Köllun

Ráðgjafar í forsætisráðum kennarasveitar og djáknasveitar og ritarar sveita

Mælt með af

Forseti sveitar

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Meðlimir sveitar

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Bekkjarforsetar Stúlknafélagsins

Mælt með af

Biskupsráð (í samráði við forsætisráð Stúlknafélagsins)

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Bekkjarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Bekkjarráðgjafar í Stúlknafélaginu og bekkjaritarar

Mælt með af

Bekkjarforseti

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Bekkjarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Aðrar kallanir deildar

Mælt með af

Biskupsráð

Samþykkt af

Biskupsráð

Stutt af

Deildarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Biskup eða tilnefndur ráðgjafi

  1. Ekki ætti að kalla starfandi innsiglara í biskupsráð. Innsiglarar eru kallaðir undir leiðsögn forseta kirkjunnar.

30.8.2

Greinarkallanir

Köllun

Mælt með af

Samþykkt af

Stutt af

Kallað og sett í embætti af

Köllun

Greinarforseti1

Mælt með af

Forsætisráð stiku, trúboðs eða umdæmis

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð eða trúboðsforsætisráð

Stutt af

Greinarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stiku- eða trúboðsforseti (eða umdæmisforseti, ef skipaður)

Köllun

Ráðgjafar í greinarforsætisráði1

Mælt með af

Greinarforseti

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð eða trúboðsforsætisráð (eða umdæmisforsætisráð, þegar heimilað af trúboðsforseta)

Stutt af

Greinarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stiku-, trúboðs- eða umdæmisforseti eða tilnefndur ráðgjafi

Köllun

Greinarritari, aðstoðarritarar og framkvæmdarritari

Mælt með af

Greinarforsætisráð

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð eða trúboðsforsætisráð (eða umdæmisforsætisráð, þegar heimilað af trúboðsforseta)

Stutt af

Greinarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stikuforseti eða tilnefndur ráðgjafi eða háráðsmaður (fyrir greinar í stikum); umdæmisforseti eða prestdæmisleiðtogi sem hann tilnefnir (fyrir greinar í trúboðum)

Köllun

Forseti öldungasveitar

Mælt með af

Stiku-, umdæmis- eða trúboðsforsætisráð (í samráði við greinarforseta)

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð eða trúboðsforsætisráð (eða umdæmisforsætisráð, þegar heimilað af trúboðsforseta)

Stutt af

Greinarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stiku- eða trúboðsforseti (eða umdæmisforseti, ef skipaður)

Köllun

Ráðgjafar í forsætisráði öldungasveitar

Mælt með af

Forseti sveitar (í samráði við greinarforseta)

Samþykkt af

Stikuforsætisráð og háráð eða trúboðsforsætisráð (eða umdæmisforsætisráð, þegar heimilað af trúboðsforseta)

Stutt af

Greinarmeðlimir

Kallað og sett í embætti af

Stiku- eða trúboðsforseti eða tilnefndur ráðgjafi eða háráð (eða umdæmisforseti eða annar prestdæmisleiðtogi, ef tilnefndur)

Köllun

Aðrar greinarkallanir

Mælt með af

Sjá 30.8.1, skipta út greinarforseti fyrir biskup og grein fyrir deild.

Samþykkt af

Sjá 30.8.1, skipta út greinarforseti fyrir biskup og grein fyrir deild.

Stutt af

Sjá 30.8.1, skipta út greinarforseti fyrir biskup og grein fyrir deild.

Kallað og sett í embætti af

Sjá 30.8.1, skipta út greinarforseti fyrir biskup og grein fyrir deild.

  1. Ekki ætti að kalla starfandi innsiglara í musteri til að þjóna í greinarforsætisráði. Innsiglarar eru kallaðir undir leiðsögn forseta kirkjunnar.

Prenta