„31. Viðtöl og aðrir fundir með meðlimum,“ Valið efni úr Almennri handbók (2023).
„31. Viðtöl og aðrir fundir með meðlimum,“ Valið efni úr Almennri handbók
31.
Viðtöl og aðrir fundir með meðlimum
31.0
Inngangur
Jesús Kristur þjónaði öðrum oft, einum af öðrum (sjá til dæmis Jóhannes 4:5–26; 3. Nefí 17:21). Hann elskar öll börn sín. Hann hjálpar þeim einstaklingsbundið.
Þessi kafli getur hjálpað öllum leiðtogum sem eiga kost á því að hitta meðlimina augliti til auglitis.
31.1
Leiðbeinandi reglur
31.1.1
Undirbúa sig andlega
Undirbúið ykkur andlega með bæn, ritningarlestri og réttlátu líferni. Hlustið á hvísl heilags anda.
31.1.2
Hjálpa meðlim að finna elsku Guðs
Þegar meðlimir koma til ykkar í viðtal eða fyrir aðstoð með persónulegar áskoranir, þá þarfnast þeir þess oft mest að vita að himneskur faðir elskar þá.
Ritningarnar og orð síðari daga spámanna bjóða andanum heim og kenna hreina kenningu. Notið þetta til að innblása og hvetja, ekki til að fordæma, þvinga eða valda hræðslu (sjá Lúkas 9:56).
31.1.3
Hjálpa meðlim að virkja kraft frelsarans
Hvetjið meðlimi til að snúa til hans. Hjálpið þeim að virkja kraft hans til að styrkja, hugga og endurleysa.
31.1.4
Hjálpa meðlim að finna hughreystingu og öryggi
Veitið ávallt meðlim möguleikann á að hafa einhvern annan viðstaddan í viðtali eða á fundi. Þegar fundurinn er með meðlim af gagnstæðu kyni, barni eða ungmenni, tryggið þá ávallt að foreldri eða annar fullorðinn einstaklingur sé viðstaddur. Hann eða hún getur verið á fundinum eða beðið fyrir utan herbergið, eftir óskum meðlimsins sem þið eruð að hitta.
Ekki miðla öðrum neinum persónulegum upplýsingum – maka ykkar þar með töldum eða öðrum kirkjuleiðtogum – nema meðlimurinn veiti leyfi sitt.
31.1.5
Spyrja innblásinna spurninga og hlusta vandlega
Þegar þið eigið fund með meðlim, spyrjið spurninga sem hjálpa ykkur að skilja stöðu hans eða hennar betur.
Hlustið vandlega og af athygli á meðan meðlimurinn talar.
31.1.6
Hvetja til sjálfsbjargar
Vegna kærleika ykkar gagnvart meðlimunum, gætuð þið strax viljað leggja til lausnir við vandamálum þeirra. Þið blessið þá hins vegar meira með því að hjálpa þeim að finna eigin lausnir og taka eigin ákvarðanir (sjá Kenning og sáttmálar 9:8).
31.1.7
Styðja viðleitni til iðrunar
Einungis biskupinn eða stikuforsetinn getur aðstoðað einstakling við að leysa alvarlegar syndir. Sumar þessar má finna í 32.6. Ef meðlimurinn hefur drýgt einhverja þessara synda, ætti hann eða hún að hitta biskupinn eða stikuforsetann án tafar.
31.1.8
Bregðast rétt við ofbeldi
Ofbeldi verður ekki umborið, af hvaða toga sem það er. Takið tilkynningum um ofbeldi alvarlega. Ef þið verðið vör við að einhver hefur orðið fyrir ofbeldi, tilkynnið þá yfirvöldum um ofbeldið og eigið samráð við biskupinn. Leiðbeiningar varðandi tilkynningar og viðbrögð við ofbeldi eru veittar í 38.6.2.
31.2
Viðtöl
31.2.1
Tilgangur viðtala
Almennt hafa leiðtogar viðtöl við meðlimi til að ákveða hvort þeir:
-
Séu reiðubúnir að meðtaka eða taka þátt í helgiathöfn.
-
Ættu að vera kallaðir í stöðu í kirkjunni.
31.2.2
Viðtalstegund
Hver getur haft viðtalið |
Tilgangur viðtalsins |
---|---|
Hver getur haft viðtalið Einungis biskup: | Tilgangur viðtalsins
|
Hver getur haft viðtalið Biskup eða ráðgjafi sem hann tilnefnir | Tilgangur viðtalsins
|
31.2.3
Skírnar- og staðfestingarviðtöl
31.2.3.1
Börn sem eru meðlimir á skrá
Biskupinn hefur prestdæmislykla til að skíra átta ára meðlimi sem eru á skrá í deild hans. Vegna þessa, hefur hann eða tilnefndur ráðgjafi viðtal við eftirfarandi einstaklinga fyrir skírn:
-
Átta ára börn sem eru meðlimir á skrá.
-
Átta ára börn sem eru ekki meðlimir á skrá en eiga foreldri eða forráðamann sem er meðlimur.
-
Meðlimi á skrá sem eru 9 ára eða eldri, hverra skírn var frestað vegna vitsmunalegrar fötlunar.
Í viðtalinu tryggir meðlimur biskupsráðs að barnið skilji tilgang skírnarinnar (sjá 2. Nefí 31:5–20). Hann tryggir einnig að barnið skilji skírnarsáttmálann og sé ákveðið í því að lifa eftir honum (sjá Mósía 18:8–10). Hann þarf ekki að nota sérstakan spurningalista. Þetta er ekki viðtal til að ákvarða verðugleika, þar sem „lítil börn … þarfnast [ekki] iðrunar“ (Moróní 8:11).
31.2.3.2
Trúskiptingar
Trúboðsforsetinn hefur prestdæmislyklana að skírnum trúskiptinga. Vegna þessa, hefur fastatrúboði viðtal við:
-
Einstaklinga sem eru níu ára eða eldri og hafa aldrei áður verið skírðir og staðfestir. Sjá 31.2.3.1 varðandi undanþágur fyrir þá sem stríða við vitsmunalega fötlun.
-
Átta ára börn og eldri sem eiga ekki foreldra sem eru meðlimir í kirkjunni.
-
Átta ára börn og eldri sem eiga foreldri sem er einnig verið að skíra og staðfesta.
31.2.4
Viðtöl fyrir vígslu til embættis í Aronsprestdæminu
Fyrir frekari upplýsingar, sjá 18.10.2.
31.2.5
Musterismeðmælaviðtöl
Musterið er hús Drottins. Það eru heilög forréttindi að fá að fara í musteri og taka þátt í helgiathöfnum. Þessi forréttindi eru ætluð þeim sem eru andlega reiðubúnir og keppa að því að lifa eftir stöðlum Drottins, eins og ákveðið er af valdhafandi prestdæmisleiðtogum.
Til að taka þessa ákvörðun, taka prestdæmisleiðtogar meðlimi í viðtöl og nota til þess spurningarnar í LCR (sjá einnig leiðbeiningarnar í 26.3).
31.2.6
Viðtöl fyrir vígslu til embættis í Melkísedeksprestdæminu
Stikuforsetinn hefur prestdæmislyklana að veitingu Melkísedeksprestdæmisins. Hann hefur einnig lyklana að vígslu í embætti öldungs og háprests.
Með leyfi stikuforsætisráðsins, hefur biskupinn viðtal við meðlimi og notar til þess spurningarnar í skjalinu Melchizedek Priesthood Ordination Record [Vígsla til Melkísedeksprestdæmis].
31.3
Önnur tækifæri fyrir leiðtoga til að eiga fund með meðlimum
-
Meðlimir geta einnig beðið um að hitta kirkjuleiðtoga þegar þeir þarfnast andlegrar leiðsagnar eða takast á við erfið persónuleg mál.
-
Biskupinn, eða einhver sem hann tilnefnir, hittir meðlimi sem búa við stundlegar þarfir (sjá 22.6).
-
Meðlimur biskupsráðsins hittir hvern 11 ára einstakling er hann eða hún fer úr Barnafélaginu yfir í djáknasveit eða námsbekk Stúlknafélagsins.
31.3.1
Fundir með ungmennum
Biskupinn eða einn ráðgjafa hans hittir hvert ungmenni tvisvar sinnum á ári. Að minnsta kosti einn þessara funda ætti að vera með biskupnum. Í upphafi ársins sem ungmennið verður 16 ára ættu báðir þessir fundir að vera með biskupnum, ef mögulegt er.
Forseti Stúlknafélagsins ber einnig ábyrgð á því að þjóna stúlkunum einstaklingsbundið. Hún getur gert svo með því að hitta stúlkur í einrúmi (eða með annan fullorðinn einstakling viðstaddan).
31.3.1.2
Umræðuefni
Megintilgangur fundanna með ungmennum er að styrkja trú á himneskan föður og Jesú Krist og hjálpa ungmennunum að fylgja þeim. Þessir fundir ættu að vera upplífgandi andleg reynsla.
31.3.2
Fundir með ungu einhleypu fólki
Biskupinn leggur mikla áherslu á andlega framþróun ungs einhleyps fólks í deildinni. Hann eða tilnefndur ráðgjafi hittir hvern ungan einhleypan einstakling einu sinni á ári, hið minnsta.
31.3.3
Fundur með meðlimum til að ræða kallanir þeirra og ábyrgðarskyldur
Stikuforsætisráð, biskupsráð og aðrir leiðtogar funda einstaklingsbundið með meðlimum varðandi kallanir þeirra.
Leiðtoginn tjáir þakklæti sitt fyrir þjónustu meðlimsins og veitir hvatningu.
31.3.6
Fagleg ráðgjöf og meðferð
Kirkjuleiðtogar eru ekki kallaðir til að vera faglegir ráðgjafar eða veita meðferð. Sú aðstoð sem þeir veita er andleg með áherslu á styrkjandi, huggandi, endurleysandi kraft Jesú Krists. Auk þessarar mikilvægu og innblásnu aðstoðar, kunna meðlimir að hafa hag af faglegri ráðgjöf þar sem hún er fáanleg.
31.4
Stafrænir fundir með meðlimum
Yfirleitt hitta leiðtogar meðlimi í persónulegum viðtölum og til að veita andlega hjálp og þjónustu. Ef þeir geta hins vegar ekki hist persónulega, geta þeir gert það rafrænt í undantekningartilfellum.