Kenning og sáttmálar 2021
Fleiri námsgögn


„Fleiri námsgögn,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Kenning og sáttmálar 2021 (2020)

„Fleiri námsgögn,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2021

Ljósmynd
fjölskylda lærir námsefni kirkjunnar

Fleiri námsgögn

Mest af þessu námsefni er að finna í smáforritinu Gospel Library og á ChurchofJesusChrist.org.

Sálmar og Barnasöngbókin

Helg tónlist laðar að andann og kennir kenningu svo eftirminnilegt sé. Auk prentuðu útgáfnanna Sálmar og Barnasöngbókin, má finna hljóð- og myndbandsupptökur margra sálma og barnasöngva á music.ChurchofJesusChrist.org og í smáforritinu Sacred Music.

Kennslubækur trúarskóla yngri og eldri deilda

Í kennslubókum trúarskóla yngri og eldri deilda er sögubakgrunnur og kenningarlegar útskýringar á reglum og frásögnum í ritningunum.

Kirkjutímaritin

Í tímaritunum Friend, New Era, Ensign og Líahóna má finna sögur og verkefni sem geta undirstrikað reglurnar sem þið kennið í Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

Gospel Topics [Trúarefni]

Í Gospel Topics [Trúarefni] má finna helstu upplýsingar um hið fjölbreytta trúarefni, ásamt hlekkjum að gagnlegu námsefni, svo sem efnistengdum aðalráðstefnuræðum, greinum, ritningarversum og myndböndum. Þar má einnig finna Gospel Topics Essays [Trúarleg ritverk], þar sem spurningum tengdum kenningu og sögu er svarað.

Sögur úr Kenningu og sáttmálum

Sögur úr Kenningu og sáttmálum hafa að geyma myndir og einfalt mál, börnum til hjálpar við að læra Kenningu og sáttmála. Einnig er hægt að finna myndbönd með þessum frásögnum í smáforritinu Gospel Library og Gospel Media Library á ChurchofJesusChrist.org.

Scripture Stories Coloring Book: Doctrine and Covenants [Litabók ritningarsagna: Kenning og sáttmálar]

Í þessari bók eru verkefnasíður, til að auðga nám barna í Kenningu og sáttmálum.

Myndbönd og listrænt efni

Listrænt efni, myndbönd og annað efni getur hjálpað fjölskyldu ykkar að læra kenninguna og sögurnar sem tengjast ritningunum. Farið í Gospel Media Library á ChurchofJesusChrist.org til að kanna námsgagnasafn kirkjunnar. Þessi námsgögn eru einnig fáanleg í smáforritinu Gospel Media og einnig má finna margar myndir í Trúarmyndum.

Revelations in Context [Opinberanir í samhengi]

Revelations in Context [Opinberanir í samhengi]: The Stories behind the Sections of the Doctrine and Covenants [Sögurnar að baki kafla Kenningar og sáttmála], er safn ritverka um sögusvið opinberananna í Kenningu og sáttmálum. Efnið í þessari kennslubók getur auðveldað ykkur að skilja betur merkingu orða Drottins í Kenningu og sáttmálum fyrir hina fyrri Síðari daga heilögu.

Heilagir

Saints [Heilagir] er saga kirkjunnar í nokkrum bindum. 1. bindi, Sannleiksstaðall, og 2. bindi, No Unhallowed Hand [Engin vanheilög hönd], spanna sama tímabil kirkjusögunnar og Kenning og sáttmálar gerir. Þessar frásagnir geta aukið ykkur skilning á samhengi og sögusviði opinberananna sem þið lærið um í Kenningu og sáttmálum.

Church History Topics [Kirkjusöguefni]

Finna má fjölmargar greinar um fólkið, smíðagripi, landsvæði og atburði sem tengjast sögu kirkjunnar á ChurchofJesusChrist.org/study/history/topics.

Teaching in the Savior’s Way [Kenna að hætti frelsarans]

Þetta námsefni getur verið ykkur gagnlegt við að læra um og tileinka ykkur reglur og aðferðir kristilegrar kennslu.

Prenta