2022
Markmið fyrir skírn
Mars/apríl 2022


Skrifað af ykkur

Markmið fyrir skírn

Ljósmynd
girl watching conference and reading scriptures

Í nóvember 2019 hlustaði ég með fjölskyldu minni á öldung Gong í þættinum Í Návígi um Áætlun barna og unglinga. Eftir þáttinn gaf biskupinn okkur bæklinga til að hjálpa okkur að ná markmiðum okkar.

Fyrsta markmiðið mitt var að ljúka lestri Mormónsbókar fyrir átta ára afmælisdaginn minn, til að búa mig undir skírnina mína. Ég var þegar byrjuð að lesa hana en var frekar áhugalaus. Þann dag gerði ég áætlum með pabba mínum. Við reiknuðum út hvað ég þyrfti að lesa marga kapítula á dag til að ljúka Mormónsbók fyrir skírnina mína. Ég tók að lesa á hverjum degi og merkti við þegar ég náði að ljúka við að lesa hvern hluta.

Er ég las, langaði mig að gera fleiri góða hluti. Ég tók því þátt í heimsföstunni sem Nelson forseti kynnti til hjálpar við að ná tökum á KÓVÍD-19. Ég var glöð að geta tekið þátt í fullri föstu. Foreldrar mínir hvöttu mig líka til að biðja og fasta til að öðlast minn eigin vitnisburð um Mormónsbók og skírnina.

Fyrsta sunnudaginn í maí, bað ég og fastaði. Fljótlega eftir það, lauk ég lestri Mormónsbókar. Ég hlakkað til skírnar minnar – á afmælisdeginum mínum. Mér fannst ég reiðubúin til að gera þennan sáttmála við Guð. Ég veit að Mormónsbók er sönn. Mér fannst gaman að lesa hana og ég er glöð að ég náði þessu markmiði með aðstoð fjölskyldu minnar.

Myndskreyting eftir Rosalie Ledezma

Prenta