2023
Hugsið himneskt!
Nóvember 2023


Sunnudagssíðdegi

Hugsið himneskt!

Útdráttur

Ljósmynd
musteri

Hala niður PDF-skjali

Ég hef lært að áætlun himnesks föður fyrir okkur er dásamleg, að það sem við gerum í lífinu skiptir raunverulega máli og að friðþæging frelsarans er það sem gerir áætlun föðurins mögulega. …

Í dag, til að hjálpa ykkur við að verða hæf fyrir hinar ríkulegu blessanir sem himneskur faðir geymir okkur, býð ég ykkur að venja ykkur á að „hugsa himneskt!“ …

Kæru bræður og systur, hvernig og hvar og með hverjum viljið þið lifa til eilífðarnóns? Valið er ykkar.

Þegar þið veljið, býð ég ykkur að horfa á stóru myndina – hafa eilífa yfirsýn. Setjið Jesú Krist í forgang, því eilíft líf ykkar er háð trú ykkar á hann og friðþægingu hans. Þetta er líka háð hlýðni ykkar við lögmál hans. …

Væntið þess að mæta mótspyrnu þegar þið einblínið á að hugsa himneskt. …

Þegar þið hugsið himneskt, munu hjörtu ykkar breytast jafnt og þétt. Þið munuð vilja biðjast fyrir oftar og einlægar. …

Þegar þið hugsið himneskt, munið þið komast að því að þið forðist allt sem rænir ykkur sjálfræðinu. …

Himnesk hugsun mun einnig hjálpa ykkur við að hlýða skírlífislögmálinu. …

Þegar þið hugsið himneskt, munuð þið sjá erfiðleika og mótlæti í nýju ljósi. …

Þegar þið hugsið himneskt, mun trú ykkar aukast. …

Það krefst trúar að greiða tíund og það eflir líka trú á Guð og ástkæran son hans.

Að velja að lifa dyggðugu lífi í kynferðislega sinnuðum, pólitískum heimi eflir trú.

Að verja auknum tíma í musterinu eflir trú.

Prenta