2023
Sjá fjölskyldu Guðs í gegnum yfirlitslinsu
Nóvember 2023


Sjá fjölskyldu Guðs í gegnum yfirlitslinsu

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Er mögulegt að sjá eins og Guð sér, jafnvel er við búum á yfirborði þessarar plánetu, að finna þessa yfirlits tilfinningu? Ég trúi því að við getum, með augum trúar, þysjað út og litið okkur sjálf og fjölskyldur okkar með von og gleði. …

Vegna Krists þá gengur allt upp. Allt sem þú og þú og þú hafið áhyggjur af – það mun allt ganga upp! Og þeir sem horfa með augum trúar geta skynjað að það verður allt í lagi núna. …

Stundum þörfnumst við frekar samkenndar en ráða, hlustunar frekar en fyrirlestra. …

Þysjum út til að skoða fjölskyldusamskipti sem kraftmikinn miðil sem kennir okkur þær lexíur sem við komum hingað til að læra er við snúum okkur til frelsarans.

Viðurkennum að í föllnum heimi er engin leið til að verða hinn fullkomni maki, foreldri, sonur eða dóttir, barnabarn, leiðbeinandi eða vinur, heldur milljón leiðir til að vera góð í því. …

Á þessum síðustu dögum verður merkasta verk okkar ef til vill með ástvinum okkar – góðu fólki sem lifir í illum heimi. Von okkar breytir því hvernig þau sjá sig sjálf og hver þau í raun eru. Og í gegnum þessa kærleikslinsu munu þau sjá hver þau munu verða. …

Og vegna þess að við erum börn sáttmálans getum við beðið um þessa tilfinningu vonar núna! …

Kærleikur er það sem breytir hjörtum. Hann er hreinasti hvatinn og aðrir geta skynjað hann. … Sannarlega sigra þeir sem elska mest og lengst! …

Þið og ég!? Við getum þetta! Við getum haldið okkur í og stokkið um borð!

Prenta