„Þið eruð dýrmæt börn Guðs,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir unglinga (2019)
„Þið eruð dýrmæt börn Guðs,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir unglinga
Þið eruð dýrmæt börn Guðs
Himneskur faðir og Jesús Kristur sköpuðu allt, þekkja allt og hafa sigrast á öllu. Þeir vilja að þið verðið eins og þeir eru! Þegar þið gerið sáttmála og fylgið áætlun Guðs, getið þið notað einstakar gjafir ykkar til að vaxa og þjóna öðrum.
Þið gerið sáttmála um að fylgja Jesú Kristi þegar þið eruð skírð og þegar þið meðtakið sakramentið.
Þegar þið eruð staðfest, hljótið þið gjöf heilags anda ykkur til leiðsagnar.
Þið getið tekið þátt í verki Guðs og þjónað í kirkjunni, undir leiðsögn valdhafa með prestdæmislykla.
Þið getið vaxið af því að læra, lifa eftir og miðla fagnaðarerindinu.
Þið getið fundið gleði þegar þið elskið og þjónið öðrum, eins og Jesús myndi gera.
Himneskur faðir sendi son sinn, Jesú Krist, til að vera fullkomin fyrirmynd og gera okkur mögulegt að iðrast og breytast.
Í musterinu getið þið þjónað og gert sáttmála sem samtengja börn Guðs um eilífð.