Börn og unglingar
Þið getið fylgt frelsaranum


„Þið getið fylgt frelsaranum,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir unglinga (2019)

„Þið getið fylgt frelsaranum,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir unglinga

Þið getið fylgt frelsaranum

Himneskur faðir vill að börn hans læri og vaxi. Hann sendi son sinn, Jesú Krist, til að vera okkur öllum fullkomið fordæmi á allan hátt.

Andlegt

Jesús óx að „náð hjá Guði.“ Þið getið vaxið andlega með því að sýna að þið elskið Guð og séuð fús til að lifa eftir fagnaðarerindinu.

Félagslegt

Jesús óx að „náð hjá … mönnum.“ Þið getið vaxið félagslega með því að sýna öllum mönnum elsku.

Líkamlegt

Jesús óx að „vexti.“ Þið getið lært að vinna og hugsa um líkama ykkar, geðheilsu og sköpunarverk Guðs.

Vitsmunalegt

Jesús óx að „visku.“ Þið getið lært í skóla, lært nýja færni og þroskað hæfileika ykkar.

Prenta