Námshjálp
ÞJS, 2. Þessaloníkubréf 2


ÞJS, 2. Þessaloníkubréf 2:2–3, 7–9. Samanber 2. Þessaloníkubréf 2:2–9

Satan mun stuðla að fráfalli, eða fráhvarfi, fyrir endurkomu Drottins.

2 Að þér látið eigi hugfallast eða komist í uppnám vegna bréfs eða anda eða orðs, nema það sé frá oss komið, eins og dagur Drottins væri þegar fyrir höndum.

3 Látið engan villa yður á nokkurn hátt. Því að fyrst kemur fráhvarfið og maður syndarinnar birtist, sonur glötunarinnar —

7 Því að misgjörðirnar eru þegar farnar að starfa í leynum, og hann er sá sem nú vinnur, og Kristur leyfir honum að vinna uns tíminn er fullnaður og honum verður burt rýmt.

8 Og þá mun hinn rangláti opinberast, og honum mun Drottinn eyða með anda munns síns og tortíma með bjarmanum af komu sinni.

9 Já, Drottinn, sjálfur Jesús, sem ekki mun koma fyrr en eftir að fráhvarfið kemur fyrir tilverknað Satans, sem vinnur af fullum krafti með táknum og fölskum undrum.

Prenta