Námshjálp
ÞJS, Galatabréfið 3


ÞJS, Galatabréfið 3:19–20. Samanber Galatabréfið 3:19–20

Móse er meðalgöngumaður hins fyrsta sáttmála, eða lögmálsins. Jesús Kristur er meðalgöngumaður hins nýja sáttmála.

19 Vegna afbrota var því lögmálinu bætt við, þangað til afkvæmið kæmi sem fyrirheitið fékk í lögmálinu er gefið var Móse, sem vígður var af höndum engla, til að vera meðalgöngumaður þessa fyrsta sáttmála, (lögmálsins).

20 meðalgöngumaður var ekki meðalgöngumaður hins nýja sáttmála, heldur er einn meðalgöngumaður hins nýja sáttmála, sem er Kristur, eins og ritað er í lögmálinu um fyrirheitið, sem Abraham og niðjum hans var gefið. Kristur er meðalgöngumaður lífsins, því að þetta er fyrirheitið sem Guð gaf Abraham.

Prenta