2023
Innsiglunarvaldið
Nóvember 2023


Innsiglunarvaldið

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Okkur hættir til að hugsa um að innsiglunarvaldið eigi aðeins við um ákveðnar helgiathafnir musterisins, en það vald er nauðsynlegt til að gera allar helgiathafnir gildar og bindandi handan dauða. …

Lögmætið sem innsiglunarvaldið veitir helgiathöfnum prestdæmisins, felur að sjálfsögðu í sér staðgenglahelgiathafnir sem framkvæmdar eru á þeim stað sem Drottinn hefur tilnefnt til þess – í musteri hans. … Þetta innsiglunarvald er fullkomin birtingarmynd réttlætis, miskunnar og kærleika Guðs.

Með aðgangi að innsiglunarvaldinu, snúa hjörtu okkar að sjálfsögðu til þeirra sem á undan eru farin. Síðari daga samansöfnun í sáttmála nær gegnum huluna. …

Æðsta og helgasta birtingarmynd innsiglunarvaldsins er hin eilífa sameining karls og konu í hjónabandi og tenging mannkyns gegnum allar kynslóðir þeirra.

Við fáum séð af hverju „hjónaband milli karls og konu er vígt af Guði og að fjölskyldan er kjarninn í áætlun skaparans um eilíf örlög barna hans“ [Fjölskyldan: Yfirlýsing til heimsins,“ Gospel Library]. Á sama tíma er okkur ljóst að í hinni ófullkomnu nútíð, er þetta ekki raunveruleikinn eða jafnvel raunhæfur möguleiki fyrir suma. En við eigum von í Kristi. …

Ég ber vitni um að kraftur og vald innsiglunar, sem endurreist var á jörðu fyrir tilstilli Josephs Smith, eru raunveruleg, að það sem með því er bundið á jörðu er sannlega bundið á himnum.

Prenta