2023
Standast daginn í Kristi
Nóvember 2023


Standast daginn í Kristi

Útdráttur

Ljósmynd
alt text

Hala niður PDF-skjali

Ég hef lært af eigin reynslu að andlegur undirbúningur fyrir komu Drottins er ekki aðeins nauðsynlegur, heldur eina leiðin til að finna sannan frið og hamingju.

Það var svalur haustdagur þegar ég heyrði fyrst orðin: „Þú ert með krabbamein.“ …

Ef ég dæi, myndi fjölskylda mín verða hugguð, styrkt og einn daginn endurreist, vegna Jesú Krists og hins endurreista fagnaðarerindis hans. Ef ég lifði, myndi ég hafa aðgang að æðsta krafti á þessari jörðu, mér til hjálpar, liðsinnis og lækningar. Allt getur farið vel að lokum vegna Jesú Krists. …

Jesús Kristur gerir okkur kleift að „standast daginn“. Að standast daginn þýðir ekki að við bætum sífellt við verkefnalistann. Hugsið um stækkunargler. Það hefur ekki þann eina tilgang að láta hluti virðast stærri. Það getur líka magnað upp og skerpt ljós til að gera það öflugra. Við þurfum að einfalda hlutina, beita kröftum okkar að því að vera ljósberar Jesú Krists. Við þörfnumst fleiri helgra og upplýsandi upplifana. …

Eilíft líf er eilíf gleði Gleði í þessu lífi, einmitt núna– ekki þrátt fyrir áskoranir okkar tíma, heldur vegna liðsinnis Drottins við að læra af þeim og að lokum sigrast á þeim –og ómælda gleði í komandi lífi. Tár munu þorna, brostin hjörtu grædd, hið týnda mun finnast, áhyggjumál leysast, fjölskyldur verða endurreistar og allt sem faðirinn á mun vera okkar.

Prenta