2023
Tíundargreiðslur: Opna flóðgáttir himins
Nóvember 2023


Tíundargreiðslur: Opna flóðgáttir himins

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Allt sem við höfum og allt sem við erum kemur frá Guði. Sem lærisveinar Guðs deilum við þessu fúslega með þeim sem í kringum okkur eru.

Eftir allt sem Drottinn gefur okkur, hefur hann beðið okkur að skila honum og ríki hans tíu prósent af öllum hagnaði okkar. Hann hefur lofað okkur að ef við erum heiðarleg í tíund okkar mun hann „[ljúka] … upp flóðgáttum himins og [úthella] … óþrjótandi blessun“ [Malakí 3:10]. Hann hefur lofað okkur því að hann muni vernda okkur frá illu. …

Flóðgáttir himins opnast á marga vegu. Sumar eru veraldlegar en margar andlegar. Sumar eru lúmskar og auðvelt að líta fram hjá þeim. Treystið á tímasetningu Drottins, blessanirnar munu ávallt skila sér. …

Heimurinn talar um tíund í tengslum við peninga okkar, en hið heilaga lögmál tíundar er í grunninn málefni trúar. Heiðarleiki í tíundargreiðslum er ein leið til að sýna vilja okkar við að setja Drottin fyrstan í lífi okkar, ofar okkar eigin hugðarefnum og hagsmunum. Ég lofa ykkur að er þið treystið á Drottin munu blessanir himna fylgja. …

Viðbótargnægð Drottins, sem sýnir sig í örlátum tíundargreiðslum ykkar, hefur styrkt sjóði kirkjunnar og boðið upp á tækifæri til að efla starf Drottins framar nokkru sem við höfum upplifað. Drottinn veit alla hluti og við munum sjá heilagan tilgang hans uppfylltan.

Prenta