Kom, fylg mér
Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur


„Notkun,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur,Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Mormónsbók 2020 (2020)

„Notkun,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur,Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Mormónsbók 2020

Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur

Fyrir hverja er þessi kennslubók?

Þetta námsefni er fyrir alla einstaklinga og fjölskyldur í kirkjunni. Því er ætlað að hjálpa ykkur að læra fagnaðarerindið – hvort heldur á eigin spýtur eða með fjölskyldu ykkar. Ef þið hafið ekki áður lært fagnaðarerindið reglubundið, getur þessi kennslubók hjálpað ykkur að byrja á því. Ef þið hafið þegar tileinkað ykkur góðar námsvenjur, gæti þessi kennslubók hjálpað ykkur að hljóta innihaldsríkari upplifanir.

Hvernig ber mér að nota þessa kennslubók?

Notið kennslubókina á hvern þann hátt sem hún gagnast ykkur. Ykkur gæti fundist hún gagnleg sem leiðarvísir eða hjálp við einkanám og fjölskyldunám á ritningunum. Þið gætuð líka notað hana fyrir fjölskyldukvöld. Lexíudrögin draga fram mikilvægar reglur í Mormónsbók, leggja til hugmyndir og verkefni fyrir einstaklinga og fjölskyldur og sjá ykkur fyrir rými til að skrá hughrif ykkar.

Þið og fjölskylda ykkar gætuð þegar verið að læra fagnaðarerindið saman reglubundið. Þið gætuð t.d. verið að lesa aðrar ritningar en Mormónsbók fyrir trúarskóla yngri eða eldri deildar. Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur er ekki ætlað að leysa af hendi eða keppa við það góða sem þið eruð þegar að gera. Það gæti verið mögulegt að læra Mormónsbók reglubundið, samhliða því að ná öðrum markmiðum ykkar í ritninganámi. Þið gætuð t.d. lesið eina ritningarbók í einkanámi og Mormónsbók með fjölskyldu ykkar (eða öfugt). Fylgið leiðsögn andans við að ákveða hvernig best er að haga einkanámi ykkar á orði Guðs.

Hvernig tengist þessi kennslubók því sem á sér stað í kirkju?

Uppsetning þessa námsefnis miðast við vikulega lestrardagskrá. Kom, fylg mér – Fyrir Barnafélagið og Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann fylgja sömu dagskráráætlun. Kennarar ykkar í kirkju munu gefa ykkur kost á að miðla upplifunum ykkar, til að styðja ykkur við að læra fagnaðarerindið á heimili ykkar og lifa eftir því, sem og hugsunum og spurningum um ritningarvers sem þið hafið lært á heimili ykkar.

Þar sem kennsla sunnudagaskólans er einungis tvisvar í mánuði, gætu kennarar sunnudagaskólans kosið að sleppa eða sameina lexíudrög til að fylgja þessari vikulegu dagskráráætlun. Það gæti líka verið nauðsynlegt þær vikur sem kirkjusamkomur falla niður sökum stikuráðstefnu eða af öðrum ástæðum. Í þeim vikum eruð þið hvött til að halda áfram að læra Mormónsbók á heimili ykkar.

Þarf ég að fylgja dagskráráætluninni?

Dagskráin mun hjálpa ykkur að ljúka lestri Mormónsbókar fyrir árslok. Auk þess getur það stuðlað að innihaldsríkari upplifunum í kirkju að fylgja sameiginlegri námsáætlun. Látið dagskrána þó ekki íþyngja ykkur; hún er einungis til að hjálpa ykkur að halda jöfnum námshraða. Mikilvægast er að þið séuð að læra fagnaðarerindið sem einstaklingar og fjölskylda.

Ljósmynd
Fjölskylda lærir ritningarnar

Prenta