Kom, fylg mér
Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám


„Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Mormónsbók 2020 (2020)

„Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Mormónsbók 2020

Ljósmynd
Kona lærir ritningarnar

Hugmyndir til að bæta persónulegt ritningarnám

Hér eru nokkrar einfaldar aðferðir til að auðga nám ykkar á orði Guðs í ritningunum.

Gætið að sannleika um Jesú Krist

Ritningarnar kenna okkur að allt vitni um Krist (sjá 2. Nefí 11:4; HDP Móse 6:63), gætið því að honum í atburðum, frásögnum og kenningum Mormónsbókar. Íhugið að útskýra eða merkja við vers sem kenna um frelsarann og hvernig fylgja á honum.

Gætið að innblásnum orðum og orðtökum

Þið gætuð fundið að ákveðin orð og orðtök í ritningunum vekja áhuga ykkar, eins og þau væru skráð sérstaklega fyrir ykkur. Þau gætu vakið persónulega samsvörun og innblásið og hvatt ykkur. Íhugið að merkja við þau í ritningum ykkar eða skrá þau í minnisbók.

Leitið sannleika fagnaðarerindisins

Stundum er sannleikur fagnaðarerindisins (oft nefndur kenning eða reglur) settur beint fram og stundum er hann settur fram í dæmisögu eða frásögn. Spyrjið ykkur sjálf: „Hvaða eilífur sannleikur er kenndur í þessum versum?“

Hlustið á andann

Gætið að hugsunum ykkar og tilfinningum, jafnvel þótt þær tengist ekki beint efninu sem þið lesið. Þau hughrif gætu einmitt tengst því sem himneskur faðir ykkar vill að þið lærið.

Heimfærið ritningarnar upp á eigið líf

Ígrundið hvernig þær sögur og kenningar sem þið lesið eiga við um líf ykkar sjálfra. Þið gætuð t.d. spurt: „Hvaða upplifanir hef ég hlotið sem gætu tengst lestrarefninu?“ eða „Hvernig get ég fylgt fordæmi þessa einstaklings í ritningunum?“

Spyrjið spurninga er þið lærið

Þegar þið lærið ritningarnar, geta spurningar komið upp í hugann. Þær spurningar gætu tengst lestrarefninu eða lífi ykkar almennt. Íhugið þessar spurningar og leitið svara er þið haldið áfram að læra ritningarnar.

Notið hjálpartæki ritningarnáms

Notið neðanmálstilvísanir til að auka skilning ykkar á þeim versum sem þið lesið, sem og Topical Guide, Bible Dictionary og Leiðarvísi að ritningunum (scriptures.ChurchofJesusChrist.org) og annað sem hjálpar við námið.

Íhugið samhengi ritningarversa

Þið getið hlotið mikilvægan skilning á versi, ef þið íhugið samhengið – aðstæður eða vettvang versins. Það getur t.d. aukið skilning ykkar á merkingu orða spámannsins að vera kunnug bakgrunni og trú þess fólks sem hann ræddi við.

Skráið hugsanir og tilfinningar

Það er hægt að skrá hughrifin sem berast við námið á marga vegu. Þið gætuð t.d. merkt við mikilvægt orð eða orðtak og skráð hugsanir ykkar sem athugasemd í ritningarnar ykkar. Þið gætuð líka haldið dagbók yfir innblásturinn, tilfinningarnar og hughrifin sem þið hljótið.

Lærið orð síðari daga spámanna og postula.

Lesið það sem síðari daga spámenn og postular hafa kennt um reglurnar sem þið finnið í ritningunum (sjá t.d. conference.ChurchofJesusChrist.org og kirkjutímaritin).

Miðlið skilningi

Að ræða um það sem þið lærið í einkanámi ykkar, er ekki aðeins góð leið til að kenna öðrum, heldur eykur það líka skilning ykkar á því sem þið lásuð.

Lifið eftir því sem þið lærið

Ritningarnám ætti ekki aðeins að auka skilning okkar, heldur líka að breyta lífsmáta okkar. Hlustið á það sem andinn hvetur ykkur til að gera við lesturinn og einsetjið ykkur síðan að bregðast við þeirri hvatningu.

Ljósmynd
Maður lærir ritningarnar

Russel M. Nelson sagði: „Ef við ,[sækjum fram, endurnærð af orði Krists og stöndum stöðug allt til enda, … munum við öðlast eilíft líf]‘ [2. Nefí 31:20].

Að endurnærast táknar meira en aðeins að smakka. Að endurnærast er að njóta. Við njótum ritninganna með því að læra þær í anda með undursamlegri uppgötvun og dyggri hlýðni. Þegar við endurnærumst af orði Krists sem greypt eru á ,hjartaspjöld úr holdi‘ [2. Korintubréfið 3:3], verða þau óaðskiljanlegur hluti af eðli okkar“ („Lifa eftir leiðsögn ritninganna,“ aðalráðstefna október 2000).

Prenta