Trúboðskallanir
Orðsending frá Æðsta forsætisráðinu


„Orðsending frá Æðsta forsætisráðinu,“ Boða fagnaðarerindi mitt: Leiðarvísir að miðlun fagnaðarerindis Jesú Krists (2023)

„Orðsending frá Æðsta forsætisráðinu,“ Boða fagnaðarerindi mitt

Orðsending frá Æðsta forsætisráðinu

Kæri trúboði,

við óskum þér til hamingju með það dásamlega tækifæri að vera trúboði fyrir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu. Ekkert verk er meira aðkallandi og mikilvægara en samansöfnun Ísraels.

Leiðarvísinum Boða fagnaðarerindi mitt er ætlað að hjálpa þér að verða betur undirbúinn og andlega þroskaðri trúboði. Honum er líka ætlað að hjálpa þér að verða áhrifaríkari kennari. Við hvetjum þig til að nota hann daglega í einkanámi þínu og í námi með félaga þínum. Við hvetjum þig líka til að nota hann á umdæmisráðsfundum og svæðisráðstefnum. Lærðu ritningarversin sem vísað er til og lærðu kenninguna og reglurnar.

Við hvetjum þig til að skuldbinda þig enn frekar því að aðstoða föður okkar á himnum í hans dýrðlega verki. Hver trúboði gegnir mikilvægu hlutverki við að hjálpa Drottni í því verki hans „að gera ódauðleika og eilíft líf mannsins að veruleika“ (HDP Móse 1:39).

Drottinn mun blessa þig þegar þú helgar þig þjónustu við hann af auðmýkt. Megir þú finna mikla gleði og hamingju þegar þú starfar meðal barna himnesks föður.

Æðsta forsætisráðið

Prenta