2022
Sjá meira af Jesú Kristi í lífi okkar – Útdráttur
Nóvember 2022


„Sjá meira af Jesú Kristi í lífi okkar – Útdráttur,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2022.

Sjá meira af Jesú Kristi í lífi okkar

Útdráttur

Ljósmynd
Tilvitnun Browning á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Til að hjálpa okkur að haldast stöðug og stefna í rétta átt, þá býður frelsarinn okkur að skoða líf okkar út frá honum, til að geta séð meira af honum í lífi okkar. …

Sem fylgjandi fagnaðarerindisins á árum áður, hitti ég marga sem tóku eftir breytingum í atferli, háttalagi og ákvarðanatöku minni eftir að ég gekk í kirkjuna. …

Með ströngu átaki, þar sem ég einblíndi á og leitaði að Jesú Kristi í hverri hugsun og athöfn, lukust augu mín upp og skilningur minn vaknaði á því að Jesús Kristur væri að kalla á mig að „koma til [sín].“ …

Ég lærði þá það sem ég veit nú, að frelsari okkar, Jesús Kristur, snýr fótum okkar að samkomuhúsum í hverri viku til að meðtaka sakramenti hans, til húss Drottins til að gera sáttmála við hann, til ritninganna og kenninga spámannanna til að læra af orði hans. Hann beinir munni okkar til þess að vitna um hann, höndum okkar til að liðsinna og þjóna eins og hann myndi liðsinna og þjóna, augum okkar til að sjá heiminn og hvert annað eins og hann sér okkur – „eins og þeir í raun eru og eins og þeir í raun munu verða“ [Jakob 4:13]. Þegar við leyfum honum að leiða okkur áfram í öllum hlutum, hljótum við vitnisburð um að „allir hlutir sýna fram á, að Guð er til“ [Alma 30:44], því þar sem við leitum hans munum við finna hann.

Prenta