2022
Heilshugar – Útdráttur
Nóvember 2022


„Heilshugar – Útdráttur,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2022.

Heilshugar

Útdráttur

Ljósmynd
Tilvitnun Craig á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Sem lærisveinar Jesú Krists, trúum við á og getum vaxið í mikilvægum þríþættum sannleika.

Í fyrsta lagi getum við haldið sáttmála okkar, jafnvel þegar það er ekki auðvelt

Þegar reynt er á trú ykkar, fjölskyldu eða framtíð – þegar þið veltið fyrir ykkur hvers vegna lífið sé svo erfitt þegar þið gerið ykkar besta til að lifa eftir fagnaðarerindinu – munið þá að Drottinn sagði okkur að búast við erfiðleikum. Erfiðleikar eru hluti af áætluninni og gefa ekki til kynna að þið hafið verið yfirgefin, þeir eru hluti af því vægi að vera hans. …

Það veitir ekki kraft að lifa í þægindum. Krafturinn sem við þörfnumst til að fá borið hita og þunga dagsins er kraftur Drottins og kraftur hans streymir í gegnum sáttmála okkar við hann. …

Í öðru lagi þá getum við sýnt trú í verki

Sem lærisveinar Jesú Krists, skiljum við að trú á hann krefst verka – sérstaklega á erfiðleikatímum. …

Í þriðja lagi getum við verið heilshugar og glöð í tilbeiðslu okkar

Ég myndi vissulega aldrei telja að raunir dagsins véfengdu elsku Guðs til mín eða leyfa að þær snéru trú minni á hann yfir í efa. …

Fram að þeim tíma er hin daglegu sár jarðlífsins eru læknuð, mun ég þjóna Drottni og treysta honum – tímasetningu hans, visku hans, áætlun hans.

Hönd í hönd með ykkur vil ég standa með honum að eilífu. Heilshugar. Vitandi að þegar við elskum Jesú Krist af öllu hjarta, mun hann gefa okkur allt í staðinn.

Prenta