2022
Fylgja Jesú Kristi í trú við hvert fótmál – Útdráttur
Nóvember 2022


„Fylgja Jesú Kristi í trú við hvert fótmál – Útdráttur,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2022.

Fylgja Jesú Kristi í trú við hvert fótmál

Útdráttur

Ljósmynd
Tilvitnun Ballards á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Bræður og systur, ég ber vitni um að þegar við fylgjum Jesú Kristi í trú við hvert fótmál, þá er von. Það er von í Drottni Jesú Kristi. Það er von fyrir alla í þessu lífi. Það er von til að fá sigrast á mistökum okkar, sorgum okkar og baráttu og raunum okkar og erfiðleikum. Það er von í iðrun og fyrirgefningu og í því að fyrirgefa öðrum. Ég ber vitni um að það er von og friður í Kristi. Hann getur borið okkur í dag í gegnum erfiða tíma. Hann gerði það fyrir fyrstu brautryðjendurna og hann gerir það núna fyrir hvert og eitt okkar. …

Þegar ég hugsa um brautryðjendur sem hafa opnað öðrum leið, hugsa ég fyrst um spámanninn Joseph Smith. …

Trúboðar okkar í dag eru nútíma brautryðjendur, því þeir miðla þessum dýrðlega boðskap með fólki um allan heim og opna þannig leið fyrir börn himnesks föður til að þekkja hann og son hans, Jesú Krist. …

Nelson forseti hefur verið brautryðjandi í kirkjunni. …

Hann er að kenna okkur hvernig verða á andlega sjálfstæðari. …

Frelsari okkar, Jesús Kristur, er fullkominn brautryðjandi í því að fyrirbúa veginn. Vissulega er hann „vegurinn“ [Jóhannes 14:6] sem uppfyllir sáluhjálparáætlunina, svo við getum iðrast og í trú á hann snúið aftur til himnesks föður. …

Megum við alltaf feta í fótspor Jesú Krists og einblína á hann í trú við hvert fótmál og standa föstum fótum á sáttmálsveginum.

Prenta