2022
Koma nær frelsaranum – Útdráttur
Nóvember 2022


„Koma nær frelsaranum – Útdráttur,“ Til styrktar ungmennum, nóv. 2022.

Koma nær frelsaranum

Útdráttur

Ljósmynd
Tilvitnun Andersens á veggspjaldi

Hala niður PDF-skjali

Okkur er ljóst að eftir því sem illskan eykst í heiminum, verður andlegt líf okkar og andlegt líf þeirra sem við elskum háðara því að við leggjum meiri rækt við og styrkjum trúarrætur okkar á Jesú Krist. …

Líkt og við vitum mæta vel, þá er það meira en ein ákvörðun – meira en einn atburður – að trúa á Jesú Krist og að vera sannur lærisveinn. Það er heilagt, viðvarandi ferli sem eflist og stækkar í gegnum árstíðir lífs okkar og heldur áfram þar til við krjúpum við fætur hans.

Þegar góða sæðið vex innan um illgresið í heiminum, hvernig getum við þá dýpkað og styrkt skuldbindingu okkar við frelsarann á komandi tíma?

Hér eru þrjár hugmyndir:

Fyrsta: Við getum kafað dýpra í líf Jesú, kenningar hans, hátign, kraft hans og friðþægingarfórn. …

Þessu næst, vegna þess að við þekkjum og elskum frelsarann betur, þráum við enn frekar að heita honum hollustu okkar og trausti. Við gerum sáttmála við hann. …

Að gera og halda sáttmála, gerir elsku frelsarans kleift að festa djúpar rætur í hjarta okkar. …

Þriðja og síðasta hugmyndin mín: Í þessu helga viðfangsefni varðveitum við og verndum gjöf heilags anda. …

Þegar þið leyfið elsku ykkar til frelsarans, og elsku hans til ykkar, að skjóta djúpum rótum í hjarta ykkar, þá lofa ég að sjálfstraust ykkar, friður og gleði munu aukast er þið takist á við áskoranir lífsins.

Prenta