Sögur úr ritningunum
Engillinn Moróní heimsækir Joseph Smith


„Engillinn Moróní heimsækir Joseph Smith,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum (2024)

„Engillinn Moróní heimsækir Joseph Smith,“ Sögur úr Kenningu og sáttmálum

1823

Engillinn Moróní heimsækir Joseph Smith

Að læra um helga bók

Joseph Smith horfir út um gluggann á heimili sínu.

Þrjú ár hafa liðið frá Fyrstu sýn Joseph Smith. Joseph leið illa yfir nokkrum mistökum sem hann hafði gert frá þessum tíma. Hann velti því fyrir sér hvað Guði fyndist um hann.

Joseph Smith – Saga 1:28–29; Heilagir, 1:20

Joseph Smith biðst fyrir við rúmstokkinn sinn.

Kvöld eitt, eftir að allir voru sofnaðir, ákvað Joseph að biðjast fyrir. Guð hafði svarað bænum hans áður og Joseph vissi að hann myndi svara þeim aftur.

Joseph Smith – Saga 1:29; Heilagir, 1:21–22

Moróní birtist Joseph Smith.

Meðan Joseph baðst fyrir, fylltist herbergið ljósi. Joseph sá engil sem stóð í loftinu við rúm hans. Engillinn sagðist heita Moróní. Guð hafði sent hann. Hann sagði að Guð hefði fyrirgefið Joseph og væri með verk fyrir hann að vinna. Fólk um allan heim myndi þekkja Joseph og verkið sem Guð fól honum.

Joseph Smith – Saga 1:30–33

Moróní segir Joseph Smith frá bók gerðri úr gulltöflum.

Moróní sagði að til væri bók gerð úr gullsíðum eða töflum. Hún væri grafin í hæð einni nærri heimili Josephs. Bókin var um fólk sem bjó í Ameríku fyrir löngu síðan. Þau vissu um Jesú Krist og fagnaðarerindi hans. Moróni sagði að Guð myndi hjálpa Joseph að þýða bókina svo fólk gæti lesið hana.

Joseph Smith – Saga 1:34,46

Joseph Smith talar við föður sinn um heimsókn Morónís.

Moróní heimsótti hann þrisvar þetta kvöld og aftur næsta dag. Joseph sagði föður sínum frá því sem hann hafði séð. Faðir Joseph var ánægður. Hann sagði við Joseph „að þetta væri frá Guði“.

Joseph Smith—Saga 1:35–50; Heilagir, 1:22–25

Joseph Smith finnur gulltöflurnar undir steini.

Joseph fór upp á hæðina og fann gulltöflurnar undir þungum steini. Þegar hann teygði sig eftir þeim, hugsaði hann um hversu mikils virði þær væru. Moróní kom og sagði Joseph að hann væri ekki tilbúinn að taka töflurnar. Hann sagði Joseph að koma aftur á þennan stað á hverju ári, þar til hann væri reiðubúinn.

Joseph Smith – Saga 1:51–54; Heilagir, 1:25–27