Námshjálp
ÞJS, Jóhannes 4


ÞJS, Jóhannes 4:1–4. Samanber Jóhannes 4:1–2

Farísear þrá að drepa Jesú. Hann framkvæmir nokkrar skírnir, en lærisveinar hans framkvæma fleiri.

1 Þegar því farísear heyrðu að Jesús hefði og skírði fleiri lærisveina en Jóhannes —

2 Leituðu þeir af enn meira kappi leiða til þess að taka hann af lífi, því að margir tóku á móti Jóhannesi sem spámanni, en þeir trúðu ekki á Jesú.

3 Þetta vissi Drottinn, þótt ekki skírði hann sjálfur jafn marga og lærisveinar hans —

4 Því að hann leyfði þeim það sem dæmi, að veita hver öðrum virðing.

ÞJS, Jóhannes 4:26. Samanber Jóhannes 4:24

Guð heitir sanntrúuðum anda sínum.

26 Því að slíkum hefur Guð heitið anda sínum. Og þeir sem tilbiðja hann verða að tilbiðja í anda og sannleika.

Prenta