2023
Tengjast
Mars 2023


„Tengjast,“ Til styrktar ungmennum, mars 2023.

Tengjast

Rikuto I.,

16 ára, Japan

Ljósmynd
piltur

Ljósmynd: Sayaka Okubo

Ég heiti Rikuto og er frá Matsudo City, Japan.

Meðan á fjölskyldukvöldi stóð notaði ég Ættartrés appið til að læra um áa mína og líf þeirra. Það kom mér á óvart að heyra að einn af forfeðrum mínum hefði verið riddaraliðsmaður og lífvörður japansks keisara sem var uppi fyrir löngu.

Ég elska að spila fótbolta, en vegna þess að ég er meðlimur Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, vildi ég ekki spila á sunnudögum. Það var erfitt fyrir mig að segja þjálfaranum mínum að ég gæti ekki æft á sunnudegi, en þegar ég útskýrði að ég færi í kirkju, leyfði hann mér samt að ganga í liðið.

Þar sem ég missti af sunnudagsæfingum, treystu liðsfélagar mínir ekki alltaf á getu mína. Ég bað fyrir því að ég yrði einbeittur og spilaði vel á æfingum, þar sem æfingatími minn var styttri en hinna í liðinu. Þegar komið var að lokamótinu, var mér boðið að taka þátt í leiknum. Ég veit að Guð hjálpaði mér að ná því markmiði.

Prenta