2023
Biðjast fyrir um hjálp varðandi einelti
Júlí 2023


„Biðjast fyrir um hjálp varðandi einelti,“ Til styrktar ungmennum, júlí 2023.

Sterkur grundvöllur

Biðjast fyrir um hjálp varðandi einelti

Ljósmynd
ungmenni í skóla

Myndskreyting: Jessica Parker

Stundum dæmir fólk okkur fyrir að vera meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og fyrir að vera öðruvísi. Í fyrra varð ég fyrir miklu einelti af fólki í skólanum. Ég fann fyrir hjálp Guðs þegar aðrir hjálpuðu mér að verjast þeim sem hrelltu mig. Það var eins og verndarskjöldur frá Guði.

Ég bað þess að ég gæti fyrirgefið þeim sem lögðu mig í einelti. Ég hef fyrirgefið þeim í hjarta og nú brosi ég til þeirra og heilsa þeim þegar ég sé viðkomandi.

Mér finnst gaman að hjálpa öðrum, eins og fótboltafélögum mínum, en ekki dæma fólk. Ég vil að aðrir sjái heildarmyndina af því hver ég er og hverjir aðrir eru.

Matthew H., Arisóna, Bandaríkjunum

Prenta