2022
Trúboðsþjónusta hefur blessað líf mitt eilíflega
Maí 2022


„Trúboðsþjónusta hefur blessað líf mitt eilíflega,“ Til styrktar ungmennum, maí 2022.

Laugardagsmorgunn

Trúboðsþjónusta hefur blessað líf mitt eilíflega

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald af trúboðum

Hala niður PDF skjali

Þegar ég hef litið til baka á líf mitt, hef ég getað gert mér grein fyrir ákveðnum upplifunum sem breyttu miklu. Ein þessara upplifana er það hvernig þjónusta mín í fastatrúboði á Englandi sem ungur maður, hefur blessað líf mitt og mótað andleg örlög mín. …

Trúboðsþjónusta mín bjó mig undir að vera betri eiginmaður og faðir, ásamt því að ná árangri í viðskiptum. Hún bjó mig einnig undir lífslanga þjónustu við Drottin í kirkju hans. …

Drottinn þekkir ykkur. … Þegar þið þjónið í trúboði, munuð þið eiga upplifanir sem hjálpa ykkur að kynnast honum betur. …

Sem postuli Drottins Jesú Krists, leita ég nú til ykkar, pilta – og þeirra stúlkna sem þrá að þjóna í trúboði – til að hefja umræður þegar í stað við foreldra ykkar um að þjóna í trúboði. Ég býð ykkur líka að ræða við vini ykkar um þjónustu sem trúboði og ef einn vina ykkar er ekki ákveðinn, hvetjið hann til að ræða við biskupinn sinn.

Skuldbindið ykkur og himneskum föður ykkar um að þjóna í trúboði og að upp frá þessum tíma munið þið halda hjörtum ykkar, höndum og hugum hreinum og verðugum. Biðjið um að öðlast vitnisburð um hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists. …

Ég bið þess að þið, piltar og stúlkur, ásamt foreldrum ykkar, munið skilja og vita hvernig trúboðsþjónusta blessar líf ykkar eilíflega.

Prenta