2022
Prédika fagnaðarboðskap friðarins
Maí 2022


„Prédika fagnaðarboðskap friðarins,“ Til styrktar ungmennum, maí 2022.

Laugardagsmorgunn

Prédika fagnaðarboðskap friðarins

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald af miðlun Mormónsbókar

Hala niður PDF skjali

Frá síðustu ráðstefnu, er ekkert lát á erfiðleikum í heiminum. Heimsfaraldurinn hefur enn áhrif á líf okkar. Nú hefur heimurinn hins vegar verið í uppnámi út af stríði. …

Bræður og systur, aldrei hefur verið meiri þörf fyrir fagnaðarerindi Jesú Krists en á okkar tíma. … Ég elska Drottin Jesú Krist og vitna að fagnaðarerindi hans er eina varanlega friðarlausnin. …

… Við höfum þá helgu ábyrgð að deila krafti og friði Jesú Krists með öllum sem vilja hlusta og láta Guð ríkja í eigin lífi.

Sérhver sá sem hefur gert sáttmála við Guð hefur lofað að láta sér annt um aðra og þjóna nauðstöddum. Við getum sýnt trú á Guð og ávallt verið fús til að svara þeim sem spyrja um „[vonina] sem í [okkur] er“ [1. Pétursbréf 3:15]. …

Í dag staðfesti ég eindregið að Drottinn hefur boðið sérhverjum verðugum, dugandi, ungum manni að búa sig undir og þjóna í trúboði. …

Fyrir ykkur, ungu og dugandi systur, er trúboð einnig áhrifaríkt, en valfrjálst tækifæri. …

… Við bjóðum einnig eldri hjón velkomin til þjónustu, ef aðstæður þeirra leyfa. …

Allir trúboðar kenna og vitna um frelsarann. Hið andlega myrkur í heiminum gerir þörfina á ljósi Jesú Krists mikilvægari en nokkru sinni áður. Allir verðskulda að þekkja hið endurreista fagnaðarerindi Jesú Krists.

Prenta