Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Hiram, Ohio, snemma í nóvember 1831. Tilefnið var sérstök ráðstefna, þar sem rædd var og ákvörðun tekin um birtingu opinberana, sem þá þegar hafði verið tekið á móti frá Drottni með spámanninum (sjá formála að kafla 1). William W. Phelps hafði nýverið stofnað prentsmiðju kirkjunnar í Independence, Missouri. Á ráðstefnunni var ákveðið að gefa opinberanirnar út í Boðorðabók og að prenta 10.000 eintök (sem var seinna minnkað niður í 3.000 eintök vegna ófyrirsjáanlegra erfiðleika). Margir bræðranna gáfu hátíðlegan vitnisburð um að opinberanirnar, sem safnað hafði verið saman til útgáfu, væru vissulega sannar, eins og heilagur andi, sem þeim veittist, hafði borið þeim vitni um. Saga Josephs Smith skýrir frá því, að eftir að opinberunin, sem þekkt er sem 1. kafli, hafði verið gefin, hafi nokkrar umræður orðið um málfar opinberananna. Þessi opinberun fylgdi.