83. Kafli
Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Independence, Missouri, 30. apríl 1832. Þessa opinberun meðtók spámaðurinn, er hann sat í ráði með bræðrunum.
1–4, Konur og börn eiga kröfu á eiginmenn sína og feður um framfærslu; 5–6, Ekkjur og munaðarleysingjar eiga kröfu á kirkjuna um framfærslu sína.
1 Sannlega, svo segir Drottinn til viðbótar lögum kirkjunnar, varðandi konur og börn, sem tilheyra kirkjunni og misst hafa eiginmenn sína eða feður:
2 Konur eiga kröfu á eiginmenn sína um framfærslu, þar til eiginmenn þeirra eru burtu teknir. Og séu þær ekki brotlegar, skulu þær eiga samfélag í kirkjunni.
3 En reynist þær ekki staðfastar, skulu þær ekki eiga samfélag í kirkjunni. Samt mega þær halda erfðahluta sínum í samræmi við lög landsins.
4 Öll börn eiga kröfu á foreldra sína um framfærslu, þar til þau eru myndug.
5 Og eftir það eiga þau kröfu á kirkjuna, eða með öðrum orðum á forðabúr Drottins, hafi foreldrar þeirra ekki tök á að veita þeim erfðahluta.
6 Og forðabúri skal við haldið með helgun kirkjunnar. Og séð skal fyrir ekkjum og munaðarleysingjum, sem og fátækum. Amen.