Sögur úr ritningunum
Loforð Esekíels uppfyllast
Esekíel var spámaður. Guð sýndi honum margt í framtíðinni sem hafði ekki gerst enn. Esekíel skrifaði það niður.
Esekíel skrifaði um tvær bækur. Önnur bókin var Biblían. Hin bókin var Mormónsbók.
Mörgum árum síðar var Biblían prentuð.
Eftir mörg ár í viðbót, þýddi Joseph Smith Mormónsbók. Sýn Esekíels uppfylltist!
Í dag getum við lesið Biblíuna og Mormónsbók. Þær vinna saman að því að kenna um Jesú Krist.
Þegar ég les ritningarnar, læri ég um Jesú Krist.