Til styrktar ungmennum
Bið, hann er þar
Maí 2024


Sunnudagsmorgunn

Bið, hann er þar

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Hvaða gjafa getið þið beðist fyrir um? Þær eru margar, en í dag langar mig að deila með ykkur þremur: …

Í fyrsta lagi, biðjið þess að vita

Hvað þurfið þið að vita? …

Þegar þið vitið að himneskur faðir er raunverulegur og að hann elskar ykkur, getið þið lifað í hugrekki og von! …

Stundum gætuð þið viljað vita hvers vegna eitthvað erfitt er að gerast í lífi ykkar eða hvers vegna þið hlutuð ekki blessun sem þið báðust fyrir um. Oft er besta spurningin til himnesks föður ekki sú að spyrja hvers vegna heldur hvað. …

Himneskur faðir mun leiða ykkur þegar þið spyrjið hann hvað þið getið gert og hvað þið getið lært.

Í öðru lagi, biðjið þess að vaxa

Himneskur faðir vill hjálpa ykkur að vaxa! …

Viljið þið vaxa í þolinmæði eða heiðarleika? Viljið þið vaxa í færni? Kannski eruð þið feimin og viljið vaxa í hugrekki. „Bið, hann er þar.“ Hjarta ykkar getur breyst fyrir tilverknað anda hans og þið getið hlotið styrk. …

Í þriðja lagi, biðjið þess að sýna

Þið getið beðið um hjálp til að sýna öðrum elsku himnesks föður. Himneskur faðir mun með anda sínum hjálpa ykkur að taka eftir einhverjum sem er sorgmæddur, svo þið getið huggað hann. Hann getur hjálpað ykkur að sýna elsku sína með því að þið fyrirgefið einhverjum. Hann getur veitt ykkur hugrekki til að þjóna einhverjum og látið þau vita að þau séu börn Guðs. …

Miðlið himneskum föður því sem býr í hjarta ykkar.

Prenta